Erlent

Stolnu verki eftir van Gogh skilað í Ikea-poka með blóðugum kodda

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Verkið er frá 1884 og metið á 400 til 900 milljónir króna.
Verkið er frá 1884 og metið á 400 til 900 milljónir króna.

Málverkið „Vorgarður“ eftir Vincent van Gogh er komið aftur í öruggar hendur eftir að hafa verið stolið af Singer-safninu í bænum Laren í Hollandi árið 2020. Það var málverkaspæjari sem endurheimti verkið, eftir að það hafði gengið manna á milli.

Verkið er í eigu Groninger-safnsins en var lánað Singer-safninu og stolið af atvinnuþjófnum Nils M, sem bjó skammt frá Laren. Laren var dæmdur fyrir stuldinn og fyrir að hafa stolið verki eftir Frans Hals af safni í Leerdam nokkrum mánuðum síðar.

Þegar Nils M var handtekinn hafði hann losað sig við „Vorgarð“ og samkvæmt gögnum sem lögregla komst yfir var verkið komið í hendur glæpahóps sem hugðist bjóða það í skiptum fyrir vægari fangelsisdóma.

Listaverkaspæjarinn Arthur Brand sagði í samtali við BBC að menn teldu sig vita að verkið myndi fara á milli manna í kjölfarið, þar sem enginn vildi láta nappa sig með það. Þannig fór það að lokum að maður setti sig í samband við Brand, sem sagðist hafa verkið undir höndum en vildi losna við það.

„Ég var í afmælisveislu og hann beið undir tré og útskýrði fyrir mér af hverju hann vildi gera þetta,“ sagði Brand um fund mannanna í Amsterdam. Maðurinn lét Brand lofa sér því að koma ekki upp um hann og það var samþykkt af yfirvöldum, þar sem talið var víst að maðurinn hefði ekki komið nálægt þjófnaðinum.

Brand fékk verkið afhent á heimili sínu í Ikea-poka með blóðugum kodda, sem var ætlað að vernda verkið frá skemmdum. Stjórnandi Groninger-safnsins beið skammt frá til að geta staðfest að verkið væri ófalsað.

Stjórnandinn, Andreas Bluhm, segir nokkrar rispur á verkinu en að það ætti að reynast auðvelt að gera við það. Viðgerðin mun fara fram á Van Gogh-safninu.

Bluhm segir málið hafa tekið mikið á og verkið verði ekki lánað aftur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×