Okkar ylhýra Hannes Örn Blandon skrifar 24. ágúst 2023 16:00 Ég undirritaður, fyrrum travelissjúprómóter og gæd, hef setið í þungum þönkum um hríð. Sagt er að enska tröllríði íslenskunni þessi misserin. Hafa mætir menn og sérfræðingar látið gamminn geysa og telja að enskan muni ríða íslenskunni að fullu ef ekki verður við spornað. Ég ræddi þetta við nokkra kunningja og okkur kom saman um að þetta væri einfaldlega nútíminn og okkar ylhýra tungumál yrði að fá að þróast og skipast sem nágrannatungumálin. Ekki veit ég hvenær Danir urðu urðu svona þvoglumæltir eða Norðmenn svona mállýskufjölbreyttir, nú eða Svíar svona stuttorðir. En í þvísa tungumáli hafa orð og heiti skroppið saman. Dæmi: Bær í Svíþjóð heitir Båsta, hét áður sennilega Bústaður eða Bátastaður. Bær í Dölum þar heitir Falun en hét áður Faluåen og þar áður Fölaá þ.e. Hvítá. Annar einn bær heitir Fagersta eða Fagristaður. Það má greina þessa þróun í Íslenskunni í talmáli unglinga, sbr. þúst þ.e. þú veist, ettergeðt eða þetta er geðveikt og svo mætti lengi telja. Nú að öðru. Við hjónakornin fórum nýlega til Vestmannaeyja og fengum aldeilis dásamlegt veður og sáum margt athyglivert. Eyjamenn virðast samt lítið fyrir fólk, sem ekki þekkir til, því við fundum ekkert almennilegt kort yfir eyjarnar og virtist okkur ríkja svipað ástand og í Bretlandseyjum forðum þegar breskir snéru merkingum út og suður til þess að Germanir gætu ekki ratað um eyjarnar. Við tjölduðum í Herjólfsdal svona til að anda að okkur þjóðhátíðarloftinu sem við höfum aldrei leyft okkur að njóta áður. Ekki laust við að mig hafi dreymt vín, víf og söng þá nótt. Daginn eftir datt okkur í hug að sækja baðhús eyjamanna heim og taka laugar. Það var heldur ógeðfellt því erlendir túristar voru búnir að hertaka allar laugar og hlupu karlar yfirleitt óbaðaðir (mér skilst á Svönu minni að sama ástand hafi ríkt í kvennaklefa og hvað leyndist í baðfötum er óljóst) ofan í laugar. Ég hef allataf verið sæmilegur syndari og hef sótt margar laugar en sumstaðar bólar hvergi á baðvörðum. Hér bið ég því sundlaugasjeffa að ráða baðverði sem snarast þar sem hvergi eru, í ljósi þess að nú er búið að hækka sundlaugagjöldin. Við dvöldum ekki lengi. Við sigldum í land í renniblíðu eins og Einar Gísla hvítasunnumaður orðaði það einhvern tíma. Svana mín keyrði og ég leit í kringum mig. Skyndilega leið mér eins og ég væri í bíltúr á Englandi því örnefni, hótel og veitingastaðir hétu meira eða minna upp á ensku. Til að mynda eru kottagesar út um allt. Á leiðinni mátti fá street food, Lavapizzu og skoða the caves of Hella, svo dæmi séu tekin. Kæru landsmenn: HVERT STEFNIR.?? Eigum við að lúffa eða Iff jú kent bít ðem djojn ðem? Ég er gamall gæd, eins og áður sagði, og langar að spá í þróun hins ylhýra. Strít fúd, Lavapizza, og keifarnir við Stónslabbið. Ég gædaði túrista um norðurland í den, stoppuðum gjarnan við Godfolið og ókum svo til Moskítóleiksins (hljómar betur en Midgeleik). Þar var áð og fengu menn moskítótrát (trát beygist ágætlega á íslensku) á gæserbrauði. Þá fórum við stundum Góld sörkulinn, skoðuðum Gæsir og Góldfolið. Jafnan var og ekið á Dingvall (er til á Skotlandi og Suðureyjum a.m.k.) örkuðum Commongjána og löbbuðum uppá Lögkliffið. Í námunda má greina að nú er Snorrisjoppan orðin að lambpleisi (pleis beygist ágætlega á íslensku, þ.e. hér er pleis, um pleis, frá pleisi, til pleiss t.d.). Með bestu kveðju úr Sólheimum (Sönnívörldum ) Undirritaður er áhugamaður um þróun tungumála og gammall gæd. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Íslensk tunga Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun