Lífið

Ágústspá Siggu Kling: Vertu vel á verði 9. ágúst

Sigga Kling skrifar
fiskar

Elsku fiskurinn minn, þú ert búin að vera að leita að hinu og þessu af því að þér finnst að þér vanti einhvern sérstakan punkt, eitthvað annað til að fylla líf þitt af lífshamingju.

  • Fiskarnir eru frá 19. febrúar til 20. mars.

Það er svo mikilvægt að skoða að þú hefur allt sem þú þarft til að framkvæma og gera það sem þú villt. Ekki vera reiður út í nokkurn mann, sú reiði mun alltaf heimsækja þig á endanum. Talaðu fallega um þá sem hafa komið þér í vandræði slepptu allri hvatvísi og stjórnsemi þá fellur allt í ljúfa löð.

Þú ert svo sannarlega búin að breyta mörgu á síðustu tveimur árum og ert á siglandi ferð í þínu skemmtilega lífi. Það er mikilvægt að þú sjáir ekki eftir neinu sem hefur átt sér stað í lífinu þínu því að það er staðreynd að þú ert sjálfur rithöfundurinn að þessari ævi sögu. 

Manneskja úr fortíðinni kemur inn í líf þitt og hjálpar þér meira en þú býst við. Það virðist vera þér lífsins ómögulegt að slaka á, þó þú sért í fríi, efast um að þú skiljir við þig símann. Þú þarft að fara aftur til fortíðar, einfalda lífið, vera skítsama um það hvaða skoðun aðrir hafa á þér.

Klippa: Ágústspá Siggu Kling - Fiskar

Nota sterk orð, þú skapar lífið með STERKUM orðum. Það er ástarkraftur í kringum þig sem tengist ekki því að þú sért að fá ástar goð eða gyðju inn í líf þitt, heldur tengist þetta öllu. Þú sýnir svo mikinn skilning á fólki sem hefur átt um sárt að binda og bjargar hreinlega öllum sem eru fjölskylda þín, eða þú hefur valið sem fjölskyldu.

Þú ert ættartréð þess vegna sogast svona margir að þér. Það sérstaklega sterkt tímabil í kringum 9. ágúst þá þarftu að vera vel á verði og spá hvernig hvernig þú ætlar að byggja upp hlutina.

Um 23. ágúst gerast atburðir sem eru til þess að þú getur næstum verið áhyggjulaus þó að það sé nú reyndar aldrei hjá elsku fisknum mínum. En þitt einstaka hjartalag mun bjarga öllu.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Jon Bon Jovi, söngvari 2. mars
  • Rebel Wilson, leikkona 2. mars
  • James Arthur, söngvari 2.mars
  • Daniel Craig, leikkari, 2. mars
  • Jessica Biel, leikkona, 3. mars
  • Ronan Keating, söngvari, 3.mars
  • Robert Kardashian, raunveruleikaþáttastjarna, 17. mars
  • Adam Levine, söngvari, 18.mars
  • Queen Latifah, söngkona, 18. mars
  • Vanessa Williams, leikkona, 18. mars
  • Grover Cleveland, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 18. mars





Fleiri fréttir

Sjá meira


×