Innlent

Tóku málin í eigin hendur og hreinsuðu sóða­lega grenndar­stöð

Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Teiti og Marteini blöskraði aðkoman og tóku málin í eigin hendur. 
Teiti og Marteini blöskraði aðkoman og tóku málin í eigin hendur.  Vísir/Vésteinn/Teitur Atlason

Íbúar Vesturbæjar hafa síðustu daga farið með ógrynni af sorpi, sem safnast hefur upp við grenndargámana, í Sorpu, í von um að borgaryfirvöld bregðist við. Þeir segja að enginn hvati sé til þess að setja pappa í pappagám þegar ruslið flæði um allt. 

Teitur Atlason, íbúi í Vesturbænum, segist hættur að nenna að kvarta í borgaryfirvöldum eins og hann hefur gert í nær þrjátíu ár, og því tekið málin í eigin hendur. „Af því að þessir grenndargámar eru að fyllast grunsamlega hratt og tæmdir grunsamlega seint,“ segir hann. 

Þegar fréttamaður náði tali af honum sagðist hann hafa farið með fulla kerru af rusli í Sorpu í gær og aftur í dag. Teitur bendir á að hann hafi sjálfur þurft að borga fyrir þær ferðir. 

Grenndargámarnir við JL-húsið í morgun. Aðkoman er ljót.Teitur Atlason

Hann jánkar, aðspurður hvort sumarið hafi að einhverju leyti farið í sorpuferðir fyrir nágranna sína. „Að minnsta kosti hluti af því. Mig langar bara að leggja mig fram við það að búa í almennilegri borg.“

Subbuleg umgengni skapi meiri sóðaskap

Teitur segir það pottþétt að hann muni leggja sér leið að grenndargámunum á nýjan leik en þó í öðrum tilgangi. „Ég mun koma hérna aftur en þá með skilti og leiðbeiningar til fólks svo það átti sig á þessu og svo þarf líka að tala við aðilana sem reka þessa gáma. Það þarf að fjölga gámum hérna. Það þarf að vera fatagámur hérna og þetta þarf að vera snyrtilegra. Ef þetta er subbulegt, eins og þetta er núna, þá gengur fólk um subbulega. Ef þetta er snyrtilegt þá gengur fólk snyrtilega um. Þetta er lögmál.“

Meðal annars leyndust sprautunálar í sorpfjöllunum við gámana. Vísir/Vésteinn

Til að mynda segist hann í þrígang hafa sent Rauða krossinum bréf varðandi fatagáminn sem staðsettur er á Sundlaugartúninu.  „Sá gámur fyllist á tveimur dögum og það er fullt af allskonar fatapokum fyrir utan með tilheyrandi sóðaskap.“ Þá segir hann Rauða krossinn enn ekki hafa brugðist við fyrirspurnunum. 

Aðkoman var allt önnur þegar félagarnir höfðu lokið verki sínu. Vísir/Vésteinn

Martin Jónas Björn Swift segir þá staðráðna í að koma sorpmálunum í réttan farveg. „En á meðan þetta er svona lélegt þá er þetta bara að bæta utan á sig. Fólk sér hérna ruslahauga og skilur eftir rusl.“ 

Hann segir markmiðið vera að koma sorpstöðinni í aðlaðandi stand þannig að erfitt verði að leggja frá sér fyrsta ruslapokann. „Það held ég að geti verið fyrsta skrefið meðan við erum að koma þessu í samt lag,“ segir hann. „Það þarf stundum bara að allt þorpið komi saman og lagi hlutina. Og það er bara þannig hérna í Vesturbænum.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×