Innherji

Yfir­tók gagna­verið af Ís­lands­banka fyrir nærri milljarð

Hörður Ægisson skrifar
Tekjur gagnaversins á Korputorgi stóðu nánast í stað á liðnu ári og námu samtals ríflega 100 milljónum króna.
Tekjur gagnaversins á Korputorgi stóðu nánast í stað á liðnu ári og námu samtals ríflega 100 milljónum króna. VÍSIR/VILHELM

Borealis Data Center keypti félagið Reykjavík DC, sem starfrækir gagnaver á Korputorgi, fyrir tæplega 900 milljónir íslenskra króna síðastliðið haust af Íslandsbanka. Vegna fjárhagsvandræða hafði gagnaverið verið yfirtekið af bankanum, stærsta lánadrottni sínum, í árslok 2021 og í kjölfarið voru meðal annars um 400 milljónir af skuldum félagsins afskrifaðar samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu.


Tengdar fréttir

Íslandsbanki kominn í einkaviðræður um sölu á gagnaverinu á Korputorgi

Íslandsbanki er samkvæmt heimildum Innherja kominn í einkaviðræður um sölu á hátæknigagnaverinu Reykjavík DC á Korputorgi en bankinn tók yfir gagnaverið á síðasta ári vegna fjárhagsvandræða. Um er að ræða innlenda aðila sem njóta stuðnings frá erlendum fjárfestum og gæti salan gengið í gegn á næstu vikum. 

Erlendir sjóðir keyptu þrjú íslensk gagnaver fyrir meira en 100 milljarða undir lok ársins

Afar samkeppnishæft og stöðugt orkuverð, sem varð á skömmum tíma talsvert lægra hér á landi í samanburði við Evrópu þar sem það hefur hækkað skarpt á tímum faraldursins, ásamt ört vaxandi áhuga alþjóðlegra fjárfestingarsjóða á gagnaversiðnaði skilaði sér í því að þrjú stærstu gagnaverin sem eru starfrækt á Íslandi voru seld fyrir samanlagt yfir 100 milljarða króna á síðustu mánuðum ársins 2021.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×