Handbolti

Stelpurnar okkar gætu lent í riðli með Grænlandi á HM í handbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra Erlingsdóttir og félagar hennar í íslenska landsliðinu bíða örugglega spenntar eftir niðurstöðunnni í dag.
Sandra Erlingsdóttir og félagar hennar í íslenska landsliðinu bíða örugglega spenntar eftir niðurstöðunnni í dag. Vísir/Hulda Margrét

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta kemst að því í dag hvaða liðum stelpurnar okkar munu mæta á heimsmeistaramótinu í desember.

Ísland fékk óvænt þátttökurétt í mótinu á dögunum sem annað af tveimur boðsliðum IHF en keppnin fer að þessu fram á Norðurlöndunum eða í Danmörku, Í Svíþjóð og í Noregi.

Riðill íslensku stelpnanna mun innihalda þrjú önnur lið og hann gæti verið spilaður í öllum þessum þremur löndum.

Mestar líkur eru á að Ísland spili í Danmörku því fjórir af átta riðlum verða spilaðir þar. Tveir fara síðan fram í Svíþjóð og tveir í Noregi.

Íslenska liðið er í fjórða og síðasta styrkleikaflokki þegar dregið verður í dag og því þegar ljóst að landslið Kongó, Senegal, Paragvæ, Íran, Kasakstans, Síle og Austurríki verða ekki í riðli Íslands.

Ísland fær hins vegar eitt lið úr hverjum af hinum styrkleikaflokkunum þremur og þar geta stelpurnar okkar bæði verið mjög heppnar og mjög óheppnar.

Íslenska liðið gæti þannig fengið nýliða Grænlands úr þriðja styrkleikaflokki en líka Afríkuþjóðirnar Kamerún og Angóla eða Asíuþjóðirnar Japan og Kína. Evrópuþjóðirnar Serbía og Úkraína eru einnig í þriðja styrkleikaflokknum ásamt Argentínu.

Íslensku stelpurnar munu síðan alltaf lenda í riðli með mjög öflugum liðum úr efstu tveimur styrkleikaflokkunum en það er munur á því að lenda í riðli með Noregi og Spáni eða í riðli með Þýskalandi og Tékklandi.

Leikstaðirnir í boði í riðlakeppninni eru Herning og Frederikshavn í Danmörku, Stavanger í Noregi og Gautaborg og Helsingborg í Svíþjóð.

Hér fyrir neðan má sjá styrkleikariðlana. Drátturinn hefst klukkan 13.30 að íslenskum tíma.

IHF



Fleiri fréttir

Sjá meira


×