Handbolti

Viktor Gísli átti vörslu ársins í Meistaradeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson gerði það gott á sínu fyrsta tímabili með Nantes í Frakklandi.
Viktor Gísli Hallgrímsson gerði það gott á sínu fyrsta tímabili með Nantes í Frakklandi. getty/Kolektiff Images

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti bestu markvörslu Meistaradeildar Evrópu á síðasta tímabili.

Evrópska handknattleikssambandið birti myndband af tíu flottustu vörslum síðasta tímabils á Twitter í gær. Varsla Viktors Gísla í leik Nantes og Kiel var í 1. sæti.

Patrik Wiencek, línumaður Kiel, reyndi þá að vippa yfir Viktor Gísla en landsliðsmarkvörðurinn sá við honum og blakaði boltanum í burtu.

Tíu bestu vörslur síðasta tímabils í Meistaradeildinni má sjá hér fyrir neðan.

Nantes komst í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili þar sem liðið tapaði fyrir Wisla Plock eftir vítakastkeppni. Nantes endaði í 3. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar en varð bikarmeistari.

Viktor Gísli gekk í raðir Nantes frá GOG fyrir síðasta tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×