Lífið

Hilmir Snær og Vala Kristín stinga saman nefjum

Svava Marín Óskarsdóttir og Íris Hauksdóttir skrifa
Vala Kristín og Hilmir Snær hafa sést saman undanfarna mánuði.
Vala Kristín og Hilmir Snær hafa sést saman undanfarna mánuði.

Einn eftirsóttasti piparsveinn landsins, Hilmir Snær Guðnason, leikari og leikkonan Vala Kristin Eiríksdóttir eru að hittast.

Vala og Hilmar hafa ítrekað sést saman undanfarna mánuði á opinberum stöðum og óhætt að segja að mikil rómantík ríki á milli þeirra. 

Til dæmis hefur sést til þeirra á Veður barnum, Spánska barnum sem og í fjölda hestaferða.

Nokkur aldursmunur er á parinu. Vala er fædd árið 1991 og Hilmir árið 1969, sem gerir 22 ára aldursmun.

Kunni ekki að vera einhleypur

Leikaraparið vann náið saman í sýningunni Oleanna sem sýnt var í Borgarleikhúsinu rétt fyrir heimsfaraldur. Í æfingarferlinu sat Hilmir Snær í leikstjórastólnum en steig svo sjálfur inn í aðalhlutverkið á móti Völu Kristínu þegar Ólafur Darri, sem áður átti að leika hlutverkið, þurfti frá að hverfa. 

Í samtali við Vísi fyrr á þessu ári sagðist Hilmir Snær eiga erfitt með að vera einhleypur en svo virðist sem slíkt vandamál sé nú úr sögunni.

Vala Kristín vinnur nú að sjöttu seríu af Venjulegu fólki þar sem Hilmir Snær hefur verið tíður gestur sem aukaleikari. Fyrir utan sameiginlegan starfsvettvang sameinast þau Vala Kristín og Hilmir Snær um ást sína á hestum.

Snertingar leyfðar á ný

„Ég svaf ekkert, ég gat ekki beðið eftir að fá að koma við Hilmi,“ segir Vala Kristín í viðtali við Rúv eftir að samkomubanni var aflétt við uppsetningu á verkinu Oleanna. Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Hvorugt vildi tjá sig um sambandið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×