Að sögn Snæbjarnar fást ekki upplýsingar frá íslenskum yfirvöldum um hversu stór hluti raforkunýtingar gagnavera fari í rafmyntagröft. Heldur ekki frá gagnaverunum sjálfum. Enginn vilji ræða hversu mikið þetta sé þrátt fyrir fyrirspurnir blaðamanna og þingmanna.
Í aðsendri grein á Vísi á sunnudag greinir hann hins vegar frá tölum norska bitcoin-sérfræðingsins Jaran Mellerud, þar sem kemur fram að reiknigeta Íslands sé 1,3 prósent af heildinni. Það nemur 120 megawöttum af þeim 140 sem fóru til gagnavera á Íslandi árið 2022 samkvæmt Orkustofnun. Eða 85 prósent.
Gagnaver nota 30 prósentum meira rafmagn en heimilin í landinu, sem þýðir að það fer meiri orka í að grafa eftir bitcoin en að knýja öll heimili landsins. Bitcoin er langstærsta rafmynt heims og Íslendingar eru langstærstu framleiðendur þess miðað við höfðatölu.
„Þetta eru bestu tölurnar sem við höfum því enginn vill tala um þetta hérna á Íslandi,“ segir Snæbjörn sem er alfarið á móti nýtingu raforku til rafmyntagraftar. „Við höfum ekkert að gera við að styðja við svona spákaupmennsku með okkar rafmagni. Það eru miklu meiri verðmæti undir í náttúrunni. Það er hægt að gera alls konar vitleysu með orku en þetta er sennilega mesta vitleysan,“ segir hann.
Kærðu Hvammsvirkjun
Náttúrugrið eru tiltölulega ný náttúruverndarsamtök, stofnuð árið 2021. Takmark þeirra er að styðja við vernd líffræðilegs og jarðfræðilegs fjölbreytileika landsins á breiðum grunni. Hafa forsvarsmenn samtakanna þegar kært ýmis mál, svo sem framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunar í Þjórsá í samfloti með Náttúruverndarsamtök Íslands og Verndarsjóði villtra laxastofna (NASF).

Snæbjörn segir yfirlýsingar Landsvirkjunar um rafmyntagröft loðnar.
Í apríl árið 2021 sagði Hörður Arnarson forstjóri í Fréttablaðinu að ekki yrðu reistar virkjanir til þess að mæta aukinni orkuþörf gagnaveranna. Í þættinum Kveik á RÚV í apríl á þessu ári sagði hann hins vegar að Hvammsvirkjun myndi skaffa ýmsum raforku, þar á meðal gagnaverum.
Ætti ekki að viðgangast
„Það væri skömminni skárra ef gagnaverin væru að nýtast til annars en að grafa eftir bitcoin. En miðað við tölurnar þá fer 85 prósent orkunnar í bitcoin. Enda er gröfturinn gríðarlega orkufrekur. Þrátt fyrir yfirlýsingar hefur þetta ekkert minnkað,“ segir Snæbjörn. „Þetta er orkusóun sem ætti ekki að viðgangast í samfélagi eins og við lifum í í dag.“
Þá sé mikið áhyggjuefni að rafmyntafyrirtæki séu byrjuð að tala um að auka umsvif sín á Íslandi. En eins og Vísir greindi frá í síðasta mánuði hefur kínverska rafmyntafyrirtækið Bit Digital tilkynnt að það sé að auka umsvifin á Íslandi þó ekki sé greint frá því hvaðan orkan eigi að koma. Ástæðan er sú að Bandaríkin séu byrjuð að herða reglur og leggja á háa skatta á starfsemina. Þá er búið að úthýsa rafmyntragreftri frá Kína.