Lífið

Klám­stjarna sakar til­vonandi föðurinn Zion um fram­hjá­hald

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Nú er Zion kominn í klandur vegna kvennamála. Vonandi nær hann að leysa úr því fyrir næsta tímabil NBA-deildarinnar.
Nú er Zion kominn í klandur vegna kvennamála. Vonandi nær hann að leysa úr því fyrir næsta tímabil NBA-deildarinnar. Getty/Sean Gardner

Körfuboltamaðurinn Zion Williamson og kærasta hans greindu frá því í vikunni að þau ættu von á stúlku. Degi síðar greindi klámstjarna frá því að hún ætti í ástarsambandi við Zion og nú hefur önnur kona bæst við.

Hinn 22 ára Zion Williamson er leikmaður New Orleans Pelicans. Hann var valinn númer eitt af liðinu í leikmannavali deildarinnar árið 2019 og var þá eftirsóttasta fyrsta val leikmannavalsins síðan LeBron James var valinn af Cleveland Cavaliers árið 2003.

Undanfarin fjögur ár hefur Zion hins vegar ekki átt sjö dagana sæla. Hann hefur spilað lítið vegna meiðsla og hefur átt í erfiðleikum með að halda sér í formi. Nú virðist hann vera kominn í enn stærri vandræði.

Varpaði skugga á óléttutilkynningu

Á þriðjudaginn tilkynntu Zion og kærasta hans, Akheema, að þau ættu von á barni og buðu fjölskyldu og vinum í kynjaveislu í bakgarði á setri sínu. Þar kom í ljós að parið á von á stúlku.

Á Youtube-síðu Akheemu má sjá fjögurra mínútna myndband frá kynjaveislunni. Þar ávarpar Zion ófædda dóttur sína og segir að foreldrar hennar muni alltaf elska hana.

Hins vegar fékk parið ekki mikinn tími til að fagna fréttunum af því á miðvikudag birti Moriah Mills, fyrrverandi klámstjarna, röð tísta á Twitter þar sem hún sagðist eiga í ástarsambandi við Zion og sakaði hann um að halda framhjá sér.

Zion ekki við eina konu kenndur

Mills sagði þar að hún hefði átt í ástarsambandi með Zion í nokkuð langan tíma og þau hefðu síðast hist í New Orleans í síðustu viku. Því til stuðnings birti hún skjáskot af Snapchat af samskiptum þeirra tveggja á Twitter-síðu sinni.

Mills sagði enn fremur að hún hefði ekki haft hugmynd um að hann ætti kærustu og hvað þá að sú væri ólétt. Þá sagði hún honum að biðja fyrir því að hún sjálf væri ekki ólétt þar sem hún væri ekki enn farin á blæðingar.

Mills gengur síðan enn lengra og lýsir í miklum og grófum smáatriðum ástarlífi sínu þeirra Zion sem er ekki viðeigandi að birta hér. 

Jafnframt segist hún bera ábyrgð á því að Zion kom sér aftur í form, hún hafi hvatt hann til að verða næsta LeBron og barnsmóðir hans beri ábyrgð á þyngaraukningu körfuboltamannsins.

Í gærkvöldi steig önnur kona fram og sagðist líka hafa átt í sambandi með Zion. Hún birti myndir af Zion sofandi og myndbönd af sjálfri sér á leikjum New Orleans. Hún fer hörðum orðum um Zion og segir hann vera kynlífssjúkling.

Zion hefur ekki brugðist við ásökununum oog virðist tilvonandi barnsmóðir hans ekki kippa sér upp við það. Hún fór sjálf á Twitter og gerði lítið úr málinu.

Neðri útlimum Zion stofnað í hættu

Fréttirnar af Zion hafa skiljanlega farið eins og eldur um sinu um körfuboltaheiminn. Fjölmiðlamaðurinn Stephen A. Smith, sem vinnur hjá ESPN, fjallaði um málið í kjölfar ásakana Mills.

„Nafnið Zion Williamson bar á góma af því hann er greinilega að verða pabbi. Og manneskjan sem er að fara að gera hann að nýbökuðum föður, er ekki sama manneskja og var að tala um hann á samfélagsmiðlum,“ sagði hann í upphafi langs mónólógs um málið.

„Stelpa að nafni Moriah Mills, nafngreindi hann og lýsti í smáatriðum nánum kynnum þeirra... Hún er klámstjarna!“ sagði hann síðan æstur.

„Gaur, þú spilaði bara 29 leiki á síðasta ári! Og þú misstir af öllu tímabilinu fyrir það! Hvað í fjandanum tefur þig að verða hraustur? Jæja, nú veit ég hvað það er!“ sagði Smith eins og honum einum er lagið.

Loks sagði hann að það væri greinilegt að neðri útlimum Zion hefði verið stofnað í hættu. Til skýringar á því orðagríni þá hefur Zion glimt við meiðsli í fótum. Hér má sjá mónólóg Smith í heild sinni. 


Tengdar fréttir

Zion ætlar ekki að bregðast neinum

Zion Williamson, leikmaður New Orleans Pelicans, hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann kom fyrst inn í NBA deildina. Hann hefur glímt við ýmis meiðsli en virðist nú vera á batavegi og treystir Pelicans honum nægilega mikið til að gefa honum fimm ára samning upp á nærri 200 milljónir Bandaríkjadala.

Bak­slag hjá Zion: Spilar ekki fyrr en á nýju ári

Það verður seint sagt að NBA-ferill Zion Williamson hafi verið dans á rósum til þessa. Frá því New Orleans Pelicans valdi Zion í nýliðavali deildarinnar árið 2019 hefur hann verið meira og minna meiddur. Hann mun ekki spila aftur fyrr en á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×