Lífið

Slær met sem baðfatamódel á níræðisaldri

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Martha Stewart er ansi glæsileg í baðfataútgáfu Sports Illustrated. Hér má sjá hana sitja fyrir á sjálfri forsíðunni og síðan stinga sér til sunds í silfurlituðum sundbol.
Martha Stewart er ansi glæsileg í baðfataútgáfu Sports Illustrated. Hér má sjá hana sitja fyrir á sjálfri forsíðunni og síðan stinga sér til sunds í silfurlituðum sundbol. Skjáskot/Instagram

Sjónvarpskonan Martha Stewart prýðir forsíðu baðfataútgáfu tímaritsins Sports Illustrated fyrir árið 2023. Það gerir hana að elstu forsíðustúlku tímaritsins frá upphafi en hún verður 82 ára í ágúst.

Sports Illustrated tilkynnti á mánudag hvaða fyrirsætur yrðu á forsíðu baðfataútgáfunnar þetta árið en þær verða fjórar. 

Ásamt Mörthu Stewart á forsíðunni verða leikkonan Megan Fox, fyrirsætan Brooks Nader og söngkonan Kim Petras sem er aðeins önnur trans manneskjan til að vera á forsíðunni.

Hollywood-leikkonan Megan Fox, súpermódelið Brooks Nader og þýska söngkonan Kim Petras eru líka á forsíðu baðfataútgáfunnar í ár.Samsett mynd

Á forsíðunni sjálfri situr hin 81 árs gamla Martha Stewart fyrir í hvítum sundbol vafin í gulllituð klæði. 

Inni í tímaritinu má síðan sjá myndir af Stewart í silfurlituðum sundbol að koma upp úr Karabíska hafinu og í rauðum hálsbandskjól í Dóminíkanska lýðveldinu.

Stewart tók sig vel út í rauðum kjól á myndum tímaritsins.Skjáskot/Instagram

Söguleg forsíða

Aðspurð út í ákvörðunina að slá til og vera á forsíðunni sagði Stewart að sér fyndist tilhugsunin um að vera elsta fyrirsæta á forsíðu tímaritsins ansi góð. Almennt sagðist hún ekki hugsa mikið um aldur en sér fyndist þessi forsíða söguleg að því leyti.

Þá sagðist hún einnig hafa setið fyrir á forsíðunni til að sanna að maður gæti litið vel út og liðið vel á hvaða aldri sem er. Hér má sjá brot af viðtali við Stewart á Youtube-síðu Sports Illustrated.

„Aldur er ekki úrslitaþáttur hvað varðar vinskap eða velgengni, heldur það sem fólk gerir, hvernig fólk hugsar, hvernig fólk hagar sér. Það er það sem er mikilvægt og ekki aldur manns,“ sagði Stewart í viðtalinu. 

Þetta er þó alls ekki fyrsta fyrirsætugigg Stewart. Þegar hún var ung að árum á sjöunda áratugnum sat hún fyrir hjá fjölda tískufyrirtækja, þar á meðal hjá Chanel.

Martha Stewart starfaði sem fyrirsæta á sjöunda áratugnum.Samsett mynd

Tengdar fréttir

Stjörnurnar sem hafa setið inni

Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir byrjuðu með hlaðvarðsþáttinn Teboðið á dögunum.

Hagnaður Mörthu Stewart sexfaldast

Fyrirtæki bandarísku sjónvarps- og lífsstílskonunnar Mörthu Stewart skilaði 16,2 milljóna dala hagnaði á síðasta ársfjórðungi í fyrra. Þetta jafngildir tæplega 1,1 milljarði íslenskra króna sem er tæplega sex sinnum meira en fyrirtækið skilaði á sama fjórðungi árið 2005.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×