Körfubolti

Grindavík náði Basile frá Njarðvík

Sindri Sverrisson skrifar
Dedrick Basile er orðinn leikmaður Grindavíkur. Það er þriðja íslenska liðið sem hann spilar fyrir.
Dedrick Basile er orðinn leikmaður Grindavíkur. Það er þriðja íslenska liðið sem hann spilar fyrir. UMFG

Grindvíkingar eru stórhuga fyrir næstu leiktíð í Subway-deild karla í körfubolta og hafa nú náð í bandaríska leikstjórnandann Dedrick Basile frá grönnum sínum í Njarðvík.

Basile var að klára sína þriðju leiktíð hér á landi en í reglum um erlenda leikmenn segir að leikmenn með fasta búsetu hér á landi í þrjú ár flokkist ekki sem erlendir leikmenn frá landi utan ESB. Aðeins einn slíkur má vera í hverju liði, samkvæmt reglum sem samþykktar voru í vor.

Uppfært kl. 11.05: Samkvæmt upplýsingum Vísis er þó ekki víst að Basile flokkist öðruvísi en sem bandarískur leikmaður enn um sinn, en frægt varð í fyrra þegar Þór Þorlákshöfn taldi Pablo Hernandez hættan að flokkast sem erlendur leikmaður en var á endanum gert ljóst að svo væri ekki.

Áður höfðu Grindvíkingar fengið Danann Daniel Mortensen frá Haukum, besta erlenda leikmann Subway-deildarinnar 2021-22, og Bandaríkjamanninn DeAndre Kane sem er með ungverskt vegabréf.

„Hvalreki fyrir Grindavík“

Basile er íslenskum körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur en hann spilaði sína fyrstu leiktíð hér á landi með Þór Akureyri og fór svo til Njarðvíkur þar sem hann hefur spilað tvo vetur.

Á nýafstaðinni leiktíð skoraði Basile að meðaltali 19,8 stig fyrir Njarðvík og gaf 7,3 stoðsendingar, og var hæstur í báðum þáttum hjá liðinu.

„Við erum stolt af því að fá Dedrick Deon Basile til liðs við Grindavík fyrir komandi tímabil. Basile hefur sannað með frammistöðu sinni að hann er einn af bestu leikmönnum deildarinnar og það er hvalreki fyrir Grindavík að fá þennan öfluga leikstjórnanda til félagsins. Með komu hans getum við svo sannarlega sett stefnuna hátt á næsta tímabili,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, í tilkynningu frá félaginu.

Uppfært klukkan 11.05: Ekki liggur ljóst fyrir hvort að Basile er hættur að flokkast sem bandarískur leikmaður í reglum um erlenda leikmenn, eins og fullyrt hafði verið í greininni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×