Handbolti

Stoltur af systur sinni og segir hana yfirburða leikmann í deildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið hamförum í úrslitakeppninni.
Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið hamförum í úrslitakeppninni. vísir/hulda margrét

Orri Freyr Þorkelsson fylgist stoltur með systur sinni blómstra með Haukum í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta. Hann segir hana besta leikmann deildarinnar.

Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið hamförum í úrslitakeppni Olís-deildarinnar þar sem Haukar eru öllum að óvörum komnir í undanúrslit. Elín Klara hefur skorað 42 mörk í fjórum leikjum í úrslitakeppninni, eða 10,5 mörk að meðaltali í leik.

Þrátt fyrir að spila með Elverum í Noregi missir Orri ekki af leik hjá systur sinni og stöllum hennar í Haukum.

„Ég horfi á hvern einasta leik og það er geggjað að horfa á hana spila. Það er ótrúlegt, miðað við að hún er bara átján ára, yfirburðamaður í þessari deild að mínu mati. Ef maður horfir á þessa tölfræði er hún fáránleg. Hún er með meira en tíu mörk að meðaltali í leik,“ sagði Orri í samtali við Vísi. 

„Ég er ótrúlega stoltur af henni. Mér finnst ótrúlega gaman að fylgjast með henni og liðinu og hvernig þær hafa tekist á við úrslitakeppnina. Þetta var upp og niður á tímabilinu. Þeim gekk ekkert það vel í deildinni en svo koma þær núna, taka Fram 2-0 og þetta er allt galopið gegn ÍBV. Maður vonar bara það besta því ég er ótrúlega mikill Haukamaður.“

Orri Freyr Þorkelsson lék með Haukum áður en hann fór til Elverum fyrir tveimur árum.vísir/vilhelm

Óhætt er að líkja framgöngu Hauka í úrslitakeppninni við öskubuskuævintýri. Liðið skipti um þjálfara seint á tímabilinu og lenti í 5. sæti Olís-deildarinnar. En í sex liða úrslitum unnu Haukar Íslandsmeistara Fram, 2-0, og staðan í einvíginu gegn deildar- og bikarmeisturum ÍBV í undanúrslitunum er jöfn, 1-1. Þrjá leiki þarf að vinna til að komast í úrslit.

„Þær eru að spila við frábært ÍBV-lið sem er með leikmenn í landsliðinu. Haukarnir hafa náð nokkuð góðum leik og það eru margar sem geta gefið liðinu mikið. Þetta hlýtur að koma á óvart,“ sagði Orri.

Ekki stóð á svari er hann var spurður hvernig leikur ÍBV og Hauka í kvöld myndi fara.

„Leikur þrjú, ég ætla bara að segja að Haukar vinni þennan leik. Ég hef trú á því og vona það,“ svaraði Orri.

Leikur ÍBV og Hauka hefst klukkan 19:40 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.


Tengdar fréttir

Einar um stórstjörnur Eyjaliðsins: Þær skjóta allt of mikið

Deildar- og bikarmeistarar ÍBV munu ekki labba inn í úrslitaeinvígið í Olís deild kvenna í handbolta eins og kannski einhverjir bjuggust við. Haukastelpurnar eru sýnd veiði en ekki gefin og Haukaliðið náði að jafna metin í undanúrslitaeinvígi sínu á móti hinu gríðarlega sterka liði ÍBV.

„Ég er ótrúlega stolt af mínu liði“

Haukar unnu eins marks sigur gegn ÍBV 25-24 í ótrúlegum leik sem fór í framlengingu. Díana Guðjónsdóttir, þjálfari Hauka, var í skýjunum með ótrúlegan sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×