Umfjöllun og myndir: Ís­land - Eist­land 30-23 | Ísland kláraði undankeppnina með stæl

Andri Már Eggertsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson í leik dagsins
Viktor Gísli Hallgrímsson í leik dagsins Vísir/Hulda Margrét

Ísland vann sannfærandi sigur á Eistlandi 30-23. Viktor Gísli Hallgrímsson fór á kostum í markinu í fyrri hálfleik og Ísland var sjö mörkum yfir í hálfleik. Strákarnir okkar héldu sínu striki í seinni hálfleik og unnu öruggan sjö marka sigur.

Strákarnir okkar fögnuðu með fólkinu eftir leikVísir/Hulda Margrét

Það var full Laugardalshöll þegar Ísland fékk Eistland í heimsókn. Það var falleg stund fyrir leik þegar Boris Bjarna Akbachev var minnst með mínútu þögn.

Ísland spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og var ekki í neinum vandræðum með Eistland. Vörn Íslands var góð og Viktor Gísli Hallgrímsson fór á kostum í markinu. Viktor Gísli varði eins og berserkur. Viktor Gísli varði 13 skot og var með 57 prósent markvörslu í hálfleik. 

Viktor Gísli Hallgrímsson fór á kostum í dagVísir/Hulda Margrét

Í stöðunni 5-4 tók Ísland yfir leikinn og skoraði sex mörk í röð. Hornamennirnir Bjarki Már Elísson og Sigvaldi Björn Guðjónsson sáu um að skora mörkin. Bjarki og Sigvaldi skoruðu 12 af 17 mörkum Íslands í fyrri hálfleik.

Ísland var sjö mörkum yfir í hálfleik 17-10.

Sigvaldi Guðjónsson og Kristján Örn Kristjánsson spiluðu vel í dagVísir/Hulda Margrét

Sjö mörkum undir byrjaði Eistland seinni hálfleik betur. Gestirnir þéttu raðirnar og spiluðu betri vörn. Eistland gerði þrjú mörk í röð og minnkaði muninn í 21-14.

Rasmus Ots varði varla skot í fyrri hálfleik en vaknaði í síðari hálfleik. Rasmus Ots fór að verja nokkra bolta og á tímapunkti var hann með Elliða Snæ Viðarsson í vasanum. Þrátt fyrir meiri mótspyrnu í seinni hálfleik ógnaði það aldrei forskoti Íslands.

Sérsveitin hélt uppi stuðningnum í dag Vísir/Hulda Margrét

Bjarki Már Elísson endaði markahæstur. Bjarki Már skoraði átta mörk í fyrri hálfleik en skipti við Stiven Tobar Valencia sem spilaði síðari hálfleikinn og skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum.

Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk Vísir/Hulda Margrét

Ísland slakaði aðeins á síðustu mínúturnar í seinni hálfleik en vann að lokum sjö marka sigur 30-23. Ísland endar á toppnum í sínum riðli og verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir EM í Þýskalandi 2024. 

Það var létt yfir Elvari Erni og Stiven Tobar Vísir/Hulda Margrét

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira