Handbolti

Einar Jóns­son: Ýmis­legt annað sem má laga í þessum hand­bolta­leik

Þorsteinn HJálmsson skrifar
Einar vonsvikinn.
Einar vonsvikinn. Vísir/Diego

Framarar eru lentir undir, 1-0, í einvígi sínu gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Varð það ljóst eftir framlengdan leik liðanna í Úlfarsárdal í kvöld þar sem lokatölur voru 30-33 Aftureldingu í vil.

Aðspurður hvað hafi ráðið úrslitum í leiknum, sem var mjög sveiflukenndur, sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, þetta.

„Það er von að þú spyrjir. Við áttum að klára þetta í venjulegum leiktíma, það er alveg á hreinu. Mér finnst við slakir í vörn í dag. Byrjum illa sóknarlega líka, mjötlum þetta samt áfram. Það kannski fer þar bara kannski best að segja sem minnst hvað það varðar.“

Fram hóf síðari hálfleik leiksins mjög vel eftir að hafa verið marki undir í hálfleik en misstu þá forystu hratt frá sér.

Einar líflegur á hliðarlínunni.Vísir/Diego

„Við vorum komnir hérna þrem yfir um miðbik seinni hálfleiks eða einhvers staðar þar um kring. Þá bara köstum við boltanum frá okkur, bara glórulausar ákvarðanir, illa framkvæmdar sóknir og þar vorum við sjálfum okkur verstir því miður. Við hefðum kannski getað verið með stærri forystu og fengið betri tök á leikinn, það er alveg klárt mál. Það er margt sem við getum lagað, alveg klárlega, en það er ýmislegt annað sem má laga í þessum handboltaleik,“ sagði Einar.

Aðspurður hvort hann væri að tala um dómgæsluna varðandi það hvað mætti laga í leiknum þá neitaði hann því, þó í kaldhæðnislegum tón.

„Nei, ég ætla ekki að segja neitt núna. Þeir eru alltaf frábærir, stóðu sig frábærlega, ekki spurning.“

Næsti leikur í einvíginu er á miðvikudaginn að Varmá í Mosfellsbæ.

Einar bendir til himins.Vísir/Diego

„Möguleikarnir eru bara að fara og spila betur og vinna þá og koma aftur hingað heim. Við fáum bara alvöru dómara á þann leik, þannig að þetta verður bara frábær umgjörð og ég er ánægður með það.

Það er ekkert annað því til fyrirstöðu en bara að vinna þetta en við þurfum að spila betur. Vera betri varnarlega klárlega og sóknarlega erum við svolítið einhæfir. Við erum slakir í framlengingunni líka. Það er margt sem ég get talið upp hérna sem var ábótavant. Svona eru allir leikir búnir að vera, Fram-Afturelding. Við erum ekkert að grafa hausnum í sandinn við bara mætum teinréttir á miðvikudaginn og reynum að ná í topp frammistöðu og þá komum við aftur hingað,“ sagði Einar Jónsson að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×