Viðskipti innlent

Icelandair velur Airbus til að leysa af Boeing 757

Kristján Már Unnarsson skrifar
Airbus A321XLR hefur allt frá því smíði hennar var kynnt fyrir fjórum árum þótt einhver sterkasti arftaki Boeing 757.
Airbus A321XLR hefur allt frá því smíði hennar var kynnt fyrir fjórum árum þótt einhver sterkasti arftaki Boeing 757. Teikning/Airbus.

Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á þrettán flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að tólf flugvélum til viðbótar. Flugvélarnar verða afhentar frá og með árinu 2029.

Verði af kaupunum teljast þetta að öllum líkindum stærstu flugvélakaup Íslandssögunnar og gæti talist stærsti viðskiptasamningur í sögu þjóðarinnar. Kaupverð vélanna er trúnaðarmál á milli samningsaðila en opinbert verð einnar slíkrar vélar er um átján milljarðar króna.

„Fjármögnun verður ákveðin þegar nær dregur að afhendingu þar sem fjölbreyttir fjármögnunarkostir verða skoðaðir,“ segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Vísir/Vilhelm

Ákvörðun um að velja Airbus fram yfir Boeing markar þáttaskil í sögu Icelandair. Allt frá því Flugfélag Íslands fékk fyrstu þotuna til landsins árið 1967, Boeing 727-þotuna Gullfaxa, hafa Icelandair og forverar þess aldrei keypt nýjar þotur frá öðrum framleiðanda en Boeing.

Fjögur ár eru frá því að ráðamenn Icelandair tilkynntu fyrst að þeir væru að skoða Airbus-vélar sem arftaka Boeing 757, sem fjallað var um í þessari frétt í maí 2019:

Í tilkynningu Icelandair kemur fram að félagið geri ráð fyrir að hefja rekstur á Airbus vélum á árinu 2025 og að samningar um leigu á fjórum flugvélum af gerðinni Airbus A321LR til afhendingar 2025 séu á lokametrunum, auk þess sem gert sé ráð fyrir fleiri slíkum vélum í rekstur fram til ársins 2029. Segir að Icelandair hafi unnið að endurnýjun flugflotans á undanförnum árum og muni þessar vélar endanlega leysa Boeing 757 vélar félagsins af hólmi.

Airbus A321 sýnd í litum Icelandair.Icelandair

„Það er ánægjulegt að tilkynna að við höfum nú komist að niðurstöðu um framtíðarflota Icelandair. Við höfum ákveðið að Airbus A321LR og A321XLR verði arftakar Boeing 757 flugvéla félagsins sem munu hætta í rekstri á næstu árum," er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í fréttatilkynningu félagsins.

Airbus A321XLR rúmar um 190 farþega. XLR stendur fyrir extra long range eða mjög langt flugþol.Airbus

Í frétt Stöðvar 2 fyrir fjórum árum var sagt frá ákvörðun Airbus að smíða A321XLR-vélina og því þá spáð að hún gæti orðið framtíðarvél Icelandair:

„Boeing 757 vélin, sem hefur þjónað félaginu frá árinu 1990 og reynst okkur afar vel, hefur verið í lykilhlutverki í uppbyggingu Íslands sem tengimiðstöðvar í flugi og okkar yfirgripsmikla leiðakerfis. 

Nú munu hinar öflugu Airbus vélar taka við. Þær munu gera okkur kleift að þróa viðskiptalíkan félagsins enn frekar í flugi yfir Atlantshafið og jafnframt skapa tækifæri til að sækja á nýja og spennandi markaði,“ segir Bogi.

Fyrsta tilraunaflug XLR-vélarinnar var í júní í fyrra.Airbus

Icelandair segir flugvélategundirnar sem hér um ræðir vera hluta af Airbus A320neo fjölskyldu flugvéla sem búi bæði yfir mikilli drægni og séu af nýrri kynslóð sparneytnari og umhverfisvænni flugvéla.

„Þessar flugvélar eru með þeim hagkvæmustu sem völ er á og munu stuðla að lækkun rekstrarkostnaðar, styðja við loftslagsmarkmið Icelandair, og bjóða farþegum þægindi og ánægjulega upplifun. Vélarnar rúma um 190 farþega en til samanburðar rúma Boeing 757 flugvélar félagsins 183 farþega, Boeing 737 MAX-8 160 farþega og Boeing 737 MAX-9 178 farþega,“ segir Icelandair í tilkynningu sinni í dag.

Frá fyrsta flugtaki Airbus A321XLR í fyrrasumar.Airbus

„Airbus A321XLR flugvélin hefur allt að 8.700 kílómetra drægni sem gerir Icelandair kleift að nýta vélina á fjarlægari áfangastaði í núverandi leiðakerfi ásamt því að skapa tækifæri til þess að fljúga á nýja áfangastaði. Airbus A321LR flugvélin hefur allt að 7.400 kílómetra drægni sem gerir Icelandair kleift að nýta hana í núverandi leiðakerfi.“

Þegar Airbus A321LR-vélin var kynnt þótti hún strax mögulegur arftaki Boeing 757 hjá Icelandair. Hér má sjá fyrsta flug hennar árið 2018:

„Boeing 757, 767 og 737 MAX flugvélarnar munu halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki í rekstri Icelandair á komandi árum. Icelandair hefur átt farsælt viðskiptasamband við Boeing í áratugi og hafa Boeing vélarnar verið lykilþáttur í þróun og árangri félagsins. 

Stefnt er að því að Airbus A321XLR-vélin fái vottun flugmálayfirvalda á þessu ári og fari í þjónustu flugfélaga á því næsta.Airbus

Fram til ársins 2025 mun Icelandair áfram reka flugflota sem samanstendur einungis af Boeing flugvélum en frá afhendingu fyrstu Airbus vélanna mun félagið reka blandaðan flota sem mun samanstanda bæði af Airbus og Boeing flugvélum,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Í fyrra kom fram að Icelandair hafi att flugvélaframleiðendum í keppni og að kaup á Boeing 787-Dreamliner hafi einnig verið til skoðunar, sem sjá má hér:

Þegar Icelandair samdi um kaup á Boeing 737 MAX-þotunum árið 2012 var félagið hársbreidd frá því að semja við Airbus, sem fjallað var um hér:


Tengdar fréttir

Næstu stórkaup Icelandair gætu orðið í þessari þotu

Ráðamenn Icelandair stefna að ákvörðun fyrir áramót um framtíðarskipan flugflotans sem gæti falið í sér stórfelld flugvélakaup. Ný langdræg farþegaþota Airbus er meðal þeirra sem helst koma til greina.

Stór farþegaþota rifin í fyrsta sinn á Íslandi

Fyrsta niðurrif farþegaþotu, sem fram fer hérlendis, er langt komið í Keflavík. Flugvirkjar Icelandair luku í dag við að ná síðasta hjólastellinu undan Boeing-þotu en flugstjórnarklefinn fer svo á flugsafnið á Akureyri.

Góð útkoma Boeing Max frestar kaupum á langdrægari þotum

Icelandair hyggst bíða með ákvörðun um kaup á stærri þotum þar sem Boeing Max-þoturnar hafa reynst henta leiðakerfi félagsins betur en búist var við. Breiðþotur af gerðinni Boeing Dreamliner og Airbus-þotur eru meðal þeirra sem Icelandair skoðar til að sinna fjarlægari áfangastöðum.

Þotan sem Airbus býður sem arftaka Boeing 757

Þotan sem flutt hefur flesta Íslendinga til útlanda, Boeing 757, gæti loksins verið komin með arftaka. Það er nýjasta vél Airbus, sem fór í sitt fyrsta flug í gær.

Þotukaupin réðust að morgni eftir næturfund

Airbus-verksmiðjurnar voru hársbreidd frá því að ná samningunum um endurnýjun flugflota Icelandair og voru inni í myndinni allt fram á miðvikudagsmorgun þegar næturlöngum samningafundum lauk með því að Icelandair-menn völdu Boeing. Það var í hádeginu í gær sem ráðamenn Icelandair kynntu þá ákvörðun sína að velja Boeing 737 MAX sem framtíðarvél félagsins, með því að panta tólf slíkar þotur og festa sér kauprétt að öðrum tólf til viðbótar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×