Handbolti

Einar mun stýra báðum meistara­flokkum Fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Einar Jónsson verður allt í öllu hjá Fram.
Einar Jónsson verður allt í öllu hjá Fram. Vísir/Hulda Margrét

Einar Jónsson mun stýra Fram í bæði Olís deild karla í handbolta sem og Olís deild kvenna á næstu leiktíð. Frá þessu greindi félagið nú í kvöld.

Fyrir skemmstu greindi Stefán Arnarson frá því að hann myndi ekki stýra liði Fram áfram í Olís deild kvenna. Nafn Einars var strax nefnt til sögunnar sem arftaki Stefáns en Einar er í dag þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu.

Nú hefur Fram staðfest að Einar muni stýra báðum meistaraflokkunum á komandi tímabili. Þá verður hann ráðinn í stöðu afreksþjálfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×