Valur vann mjög þægilegan og sannfærandi sigur á KA/Þór í síðustu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta.
KA/Þór byrjaði betur og gerði fyrstu tvö mörkin. Valur skoraði sitt fyrsta mark í leiknum eftir fjórar mínútur og eftir það vöknuðu heimakonur.
Valur tók yfir leikinn eftir fyrstu tvö mörk gestanna. Heimakonur sýndu klærnar og gerðu fimm mörk í röð. Ka/Þór átti engin svör við þéttum varnarleik Vals og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir var einnig að verja vel í markinu.
Sóknarleikur Ka/Þórs var í molum í fyrri hálfleik. Eftir að hafa skorað fyrstu tvö mörkin þá skoruðu gestirnir eitt mark á tæplega þrettán mínútum. Gestirnir fóru afar illa með dauðafærin sérstaklega á línunni þar sem Hrafnhildur Hanna Anna varði vel. Ásamt því tapaði KA/Þór haug af boltum.
Valur refsaði KA/Þór ítrekað og heimakonur buðu upp á sýningu. Valur skoraði átján mörk úr öllum regnbogans litum. Valur var ellefu mörkum yfir í hálfleik 18-7.
Eftir hörmulegan fyrri hálfleik sýndi KA/Þór lífsmark í byrjun seinni hálfleik. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, las sennilega yfir sínu liði í hálfleik.
Þrátt fyrir fína byrjun KA/Þórs var Valur ekkert að fara gefa eftir. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, spilaði á öllum hópnum og það var áhugavert að fylgjast með honum skipta öðru liði inn á eftir ákveðin tíma og spilaði þar á tveimur mismunandi liðum.
Valur vann á endanum sannfærandi fjórtán marka sigur 33-19.
Af hverju vann Valur?
Fyrri hálfleikur Vals var frábær sem kálaði þessum leik. Vörn og markvarsla Vals var stórkostleg í fyrri hálfleik og mörkin komu á færibandi. Valur var ellefu mörkum yfir í hálfleik og úrslit leiksins gott sem ráðin. Valur gaf ekkert eftir í seinni hálfleik og vann að lokum fjórtán marka sigur.
Hverjar stóðu upp úr?
Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir fór á kostum og varði 16 skot og endaði með 53 prósent markvörslu.
Ellefu leikmenn Vals komust á blað í dag. Auður Ester Gestsdóttir og Lilja Ágústsdóttir skoruðu báðar sex mörk.
Hvað gekk illa?
Fyrri hálfleikur KA/Þórs var slakur. KA/Þór skoraði eitt mark á þrettán mínútum sem Valur nýtti sér og úrslitin voru ráðin í hálfleik þar sem Valur var ellefu mörkum yfir.
Hvað gerist næst?
KA/Þór mætir Stjörnunni í úrslitakeppninni sem hefst 17. apríl. Valur situr hjá í fyrstu umferð og fær lengra frí.
„Við spiluðum mjög góða vörn og markvarslan var frábær“

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var afar ánægður með sigur í síðustu umferð fyrir úrslitakeppnina.
„Ég var mjög ánægður með frammistöðuna. Við spiluðum á öllum hópnum og rúlluðum honum jafnt sem gekk vel og ég fékk framlag frá öllum,“ sagði Ágúst Jóhannsson eftir sigurinn gegn KA/Þór.
Valur spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og var staðan 18-7 í hálfleik
„Við spiluðum mjög góða vörn og markvarslan var frábær. Við skoruðum níu mörk úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik. Þegar vörn og markvarsla spilar svona vel þá erum við með hratt lið sem getur refsað með mörkum.“
„Ég er með mjög góða breidd og við höfum unnið í því að auka breiddina á tímabilinu. Við höfum verið að gefa leikmönnum tækifæri sem hafa notið sín og ég er stoltur af því.“
Valur endaði deildarkeppnina í öðru sæti og Ágúst var sáttur með tímabilið.
„Ég er mjög ánægður með tímabilið þar sem við töpuðum aðeins sex stigum. ÍBV varð deildarmeistari á innbyrðisviðureign gegn okkur þar sem munaði aðeins sekúndubroti en auðvitað var sárt að hafa ekki unnið deildina en við tökum annað sætið.“
Andri Snær: Eigum ekkert erindi í úrslitakeppnina miðað við þennan leik

Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs var svekktur eftir tap kvöldsins.
„Þetta var ekki í takt við það sem við höfum verið að gera í síðustu leikjum. Við köstuðum þessu frá okkur allt of snemma. Við skutum mjög illa og sóknin var léleg sem drap okkur í dag,“ sagði Andri Snær Stefánsson og hélt áfram að tala um fyrri hálfleikinn.
„Við komum okkur í fínar stöður til að byrja með en síðan fórum við að klikka á færum. Það var lítið sjálfstraust í mínu liði í dag. Valur fékk auðveld mörk úr hraðaupphlaupum sem Valur nýtti sér.“
Úrslitakeppnin er næst á dagskrá og Andri hafði áhyggjur af framhaldinu.
„Miðað við þennan leik eigum við ekkert erindi í þessa úrslitakeppni. Það er vont að fara inn í landsleikjahlé með svona tap en við munum ekki leggjast niður og fara að grenja,“ sagði Andri Snær Stefánsson að lokum.