Ferðast tveggja daga gömul utan í hjartaaðgerð Domino´s 14. mars 2023 15:40 María Dís, Aron, Regína, Brynja og Jakob hafa öll þurft utan í aðgerð. Myndin er tekin í sumarbúðum Neistans. Söfnunarátak stendur nú yfir til styrktar Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna. Neistinn Um 70 börn fæðast að meðaltali á ári hér á landi með hjartagalla. Mörg þurfa að gangast undir skurðaðgerð aðeins tveggja daga gömul, ýmist í Svíþjóð eða í Bandaríkjunum og mörg þurfa á endurteknum aðgerðum að halda og eftirliti alla ævi.
Nú stendur yfir söfnunarátak fyrir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna, en Domino´s og Hrefna Sætran gefa alla sölu af Góðgerðarpizzunni til Neistans. Yfir fimmhundruð fjölskyldur eru í Neistanum og segir Fríða Björk Arnardóttir, framkvæmdastjóri félagsins, mikla þörf á fræðsluefni fyrir fjölskyldur barnanna og annarra sem koma að umönnun þeirra. Fríða Björk Arnardóttir framkvæmdastjóri Neistans segir söfnunarféð verði nýtt til að útbúa fræðsluefni „Hlutverk Neistans er að styðja við fjölskyldur hjartveikra barna bæði fjárhagslega og félagslega. Nánast allar hjartaaðgerðir á börnum eru gerðar ýmist í Boston í Bandaríkjunum eða í Lundi í Svíþjóð og við fræðum foreldra sem eru að fara utan með börn í aðgerð um hvað bíður þeirra, hvernig ferlið er og hvað þau þurfa að gera við heimkomu. Markmiðið með söfnunarfénu er að útbúa fræðsluefni fyrir foreldra og fræðsluefni fyrir börnin sjálf, systkini þeirra og umönnunaraðila eins og leikskólakennara og kennara sem koma að daglegu lífi þessara barna. Við erum Hrefnu og Domino´s ótrúlega þakklát fyrir að hafa hugsað til okkar, þetta veitir okkur einstakt tækifæri til þess að gera þetta vel,“ segir Fríða. Eins og ein stór fjölskylda Í mörg horn er að líta þegar barn greinist með hjartagalla og foreldrar þurfa mikinn stuðning. Júlía Fanney, Sturla, Mikael Þór og Þór Júlían „Helsta áskorunin er hræðslan við hið óþekkta, að vita ekkert hvað er framundan. Þurfa að ferðast út og vera þar fjarri öllu þínu tengslaneti, afhenda litla barnið sem fer í risastóra aðgerð. Fólk verður dálítið eitt og oft þarf að skilja systkini eftir heima. Neistinn var stofnaður af foreldrum árið 1995 og í stjórn félagsins eru foreldrar og aðstandendur. Það hjálpar starfinu að hafa upplifað þetta sjálf, maður þekkir tilfinninguna og veit hvað er framundan,“ segir Fríða sem sjálf er „hjartamamma“. „Stelpan mín hefur farið 7 sinnum út og mun þurfa að fara í fleiri aðgerðir. Félagið er eins og ein stór fjölskylda. Það myndast náin og góð tengsl, líka milli barnanna því það er mikilvægt að geta speglað sig í jafningjum og talað við aðra sem hafa gengið í gegnum það sama og þú ert að ganga í gegnum. Þetta á líka við um systkini, þau sitja oft uppi með margar spurningar þegar foreldrarnir þurfa að fara burt í nokkrar vikur og þá er gott að þau geti verið með fræðsluefni sem þau geta sýnt, til dæmis í skólanum. Okkur dreymir um að geta búið til fræðslumyndbönd, bæklinga og bækur,“ segir Fríða. Góðerðarpzzan í tíu ár Verkefnið Góðgerðarpizzan hófst árið 2013 hjá Domino´s og Hrefnu Sætran og hefur farið fram árlega síðan þá. Á hverju ári rennur hver einasta króna af seldum Góðgerðarpizzum til eins góðgerðarfélags og hefur verkefnið meðal annars styrkt; Regnbogabörn, Konukot, Reykjadal, Pietasamtökin og Einstök börn svo nokkur séu nefnd. Góðgerðarpizzan í ár er einstök en á henni er Hvítlaukssósa, Pepperoni, Beikon, Spínat, Græn Epli, Hunang og Truffluostur. Hægt er að panta Góðgerðarpizzuna út fimmtudaginn 16. mars.
Heilsa Matur Mest lesið Munur er á manviti og mannviti Menning Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Lífið Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Lífið Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Menning „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Lífið „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Bíó og sjónvarp Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Menning Fleiri fréttir Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Græjaðu gjafalistann á góðum prís Snjallt pöntunarkerfi á hádegismat sparar vinnu, tíma og kostnað Ný vefverslun Slippfélagsins er paradís fyrir myndlistafólk Sjá meira