Viðskipti erlent

Musk biður Harald afsökunar

Samúel Karl Ólason skrifar
Mikil umræða hefur átt sér stað á Twitter vegna samskipta Musk og Haraldar.
Mikil umræða hefur átt sér stað á Twitter vegna samskipta Musk og Haraldar.

Auðjöfurinn og eigandi Twitter, Elon Musk, bað Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrverandi og mögulega áframhaldandi starfsmann Twitter afsökunar í kvöld. Það er eftir miklar og áberandi deilur þeirra á Twitter í dag og í kvöld.

Haraldur skrifaði fyrst tíst þar sem hann sagðist ekki hafa fengið nein svör hjá Twitter um það hvort hann ynni enn hjá fyrirtækinu. Því fór hann á Twitter og spurði Musk sjálfan.

Musk svaraði færslunni og fór svo í kjölfarið að gera grín að Haraldi. Þá sakaði hann Harald einnig um að hafa ekki unnið almennilega og að hann hafi notað fötlun sína sem afsökun fyrir því.

Haraldur svaraði um hæl og hófust deilurnar.

Sjá einnig: Haraldur svarar á­sökunum Musk fullum hálsi

Almannatengillinn Andrés Jónsson, sem er æskuvinur Haralds, sagði svo í dag að þó svo að fólk geti upplifað þetta sem hörð átök fyrrum starfsmanns og vinnuveitenda fyrir allra augum þá sé meira á bakvið þetta. Í rauninni hafi Musk gengið í gildru með því að svara færslunni.

Sjá einnig: Elon Musk hafi stigið í taktíska gildru Haraldar

Seinna í kvöld eyddi Musk svo tísti þar sem hann kallaði Harald „þann versta“.

Sjá einnig: Musk eyddi tísti um að Haraldur væri „sá versti“

Það var svo skömmu fyrir ellefu sem Musk svaraði manni á Twitter sem sagðist hafa unnið með Haraldi og að sá síðarnefndi hefði frábært vinnusiðferði, væri hæfileikaríkur og hógvær. Þessi maður, sem heitir Daniel Houghton, sagðist sannfærður um að einhver misskilningur væri þarna á ferðinni.

Í svari Musks sagðist hann hafa haft samband við Harald til að fá hans hlið á málinu.

„Þetta er löng saga,“ sagði Musk og bætti við: „Betra að tala við fólk en að tjá sig með tístum.“

Skömmu fyrir miðnætti bætti hann svo við afsökunarbeiðni til Haralds og sagðist hafa misskilið stöðuna, á grundvelli þess sem aðrir hefðu sagt honum.

Musk sagði að Haraldur væri að íhuga að vinna áfram hjá Twitter.


Tengdar fréttir

Verða samfélagsmiðlar stéttskiptir?

Tvö af stærstu samfélagsmiðlafyrirtækjum heims, Meta (áður Facebook) og Twitter, ætla að bjóða notendum að greiða mánaðargjald í skiptum fyrir aukið öryggi, vernd persónuupplýsinga og aukna dreifingu á samfélagsmiðlum. Þjónustu sem færa má sterk rök fyrir því að eigi að vera sjálfsagður hlutur fyrir almenna notendur samfélagsmiðla.

Vonast eftir nýjum for­stjóra Twitter fyrir árs­lok

Bandaríski auðjöfurinn Elon Musk, eigandi bílaframleiðandans Tesla og samfélagamiðilsins Twitter, segist vona að hann verði búinn að finna einhvern til að taka við forstjórastöðunni hjá Twitter fyrir árslok 2023.

Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðs­mis­notkunar

Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018.

Höfða mál gegn Twitter vegna vangoldinnar leigu

Eigendur skrifstofuhúsnæðis Twitter í San Francisco í Bandaríkjunum hafa höfðað mál gegn samfélagsfyrirtækinu og segja Twitter ekki hafa greitt leigu. Félagið Columbia Reit-650 California LLC segir Twitter skulda 136.260 dali vegna leigu en önnur fyrirtæki hafa einnig höfðað mál gegn Twitter vegna vanefnda.

Gengur illa að laða auglýsendur aftur á Twitter

Elon Musk og öðrum yfirmönnum Twitter eiga í erfiðleikum með að fá stærstu auglýsendur samfélagsmiðilsins aftur af borðinu en flestir þeirra eru hættir að auglýsa þar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×