Körfubolti

Gleðin við völd á Nettó-mótinu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Yfir eitt þúsund keppendur mættu til leiks í Keflavík um helgina.
Yfir eitt þúsund keppendur mættu til leiks í Keflavík um helgina. Stöð 2/Vísir

Mikil gleði var í Reykjanesbæ um helgina er Nettó-mótið í körfubolta fór fram. Yfir eitt þúsund keppendur tóku þátt á mótinu.

Um er að ræða stærsta körfuboltamót landsins á ári hverju og það var ekki af smærri gerðinni í ár. Fjölmargir sjálfboðaliðar frá liðum Njarðvíkur og Keflavíkur komu að mótinu enda afar stórt í sniðum.

23 félög víða af um landið mættu á mótið, meðal annars frá Sauðarkróki, Laugarvatni og Höfn í Hornafirði.

Félögin 23 skráðu alls 221 lið leiks og voru keppendur, sem voru á aldrinum sex til tíu ára yfir eitt þúsund talsins og nutu sín vel á þessari körfuboltahátíð í Reykjanesbæ.

Sjá má hluta af stemningunni í spilaranum að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×