Handbolti

Viggó skoraði sjö í þriðja sigri Leipzig í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Viggó Kristjánsson skoraði sjö mörkj fyrir Leipzig í dag.
Viggó Kristjánsson skoraði sjö mörkj fyrir Leipzig í dag. EPA-EFE/Khaled Elfiqi

Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson var næstmarkahæsti maður vallarins er Leipzig vann sterkan þriggja marka sigur gegn Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 31-34.

Viggó skoraði sjö mörk fyrir Leipzig sem hafði yfirhöndina stærstan hluta leiksins. Mest náði liðið sjö marka forskoti í síðari hálfleik áður en heimamenn klóruðu í bakkann undir lokin.

Leipzig, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, hefur nú unnið þrjá deildarleiki í röð og situr í sjöunda sæti deildarinnar með 22 stig eftir 21 leik, tólf stigum á eftir Kiel sem situr í þriðja sæti.

Þá unnu Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg góðan tveggja marka sigur gegn Hamburg á sama tíma, 34-32. Flensburg situr í fimmta sæti deildarinnar með 32 stig og er liðið komið langleiðina með að tryggja sér sæti í Evrópudeildinni á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×