Innlent

Mygla fannst í eldra húsnæði Melaskóla

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Í tölvupósti sem Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla sendi á foreldra og aðstandendur í gærdag kemur fram að sérfræðingar hjá verkfræðistofunni Eflu hafi verið að skoða ástand skólans í vetur
Í tölvupósti sem Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla sendi á foreldra og aðstandendur í gærdag kemur fram að sérfræðingar hjá verkfræðistofunni Eflu hafi verið að skoða ástand skólans í vetur Vísir/Vilhelm

Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í eldra húsnæði Melaskóla. Skólastjórnendur hafa boðið til fundar með foreldrum og aðstandendum nemenda næstkomandi mánudag.

Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var á foreldra og aðstandendur barna í Melaskóla í gær.

Líkt og fram kom í frétt Vísis þann 2. janúar síðastliðinn hefur mygla komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík.

Fimm skólar hafa verið lokaðir, í heild eða að hluta til: Hagaskóli, Laugarnesskóli, Sunnuás, Grandaborg og Nóaborg.

Helgi Grímsson sviðsstjóri segir að borgin sé í átaki með að fara yfir skólahúsnæði borgarinnar og því líklegt að fleiri skólahúsnæði greinist með myglu.

„Það sem vitum núna er og er búið að vera vinna er að þetta um þrjátíu hús þar sem hefur greinst mygla í mjög mismiklum mæli en þetta segir líka að við erum að gera betur, starfsfólk er líka meðvitaðra en áður um að þessi vandi geti komið upp. Við erum í átaki og þess vegna segi ég að á komandi mánuðum muni bætast í hópinn það tel ég alveg víst,“ sagði Helgi.

Telja að ekki þurfi að færa starfsemina úr húsi

Í tölvupósti sem Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla sendi á foreldra og aðstandendur í gærdag kemur fram að sérfræðingar hjá verkfræðistofunni Eflu hafi verið að skoða ástand skólans í vetur, meðal annars með rakamælingum og sýnatökum.

„Niðurstöðurnar hafa nú verið kynntar fyrir okkur skólastjórnendum. Það liggur fyrir að mygla greinist á nokkrum stöðum í eldra húsinu, en hins vegar er upprunalegi gólfdúkurinn að verja okkur að mörgu leyti en hann þykir víst einstaklega þykkur. Farið verður í minni háttar aðgerðir og tilfæringar strax en ekki er talið að við þurfum að flytja starfsemina úr húsi sem eru vissulega góðar fréttir. Umfangsmeiri framkvæmdir munu bíða þar til í sumar,“ segir í bréfinu.

Þá kemur fram að þegar í stað verði ráðist í viðurkenndar mótvægisaðgerðir til að bæta innivist.

„Næstu daga verða sett upp lofthreinsitæki í skólanum og þá verður farið í sérstök mygluþrif á áhættusvæðum í vetrarfríinu.“

Skólastjórnendur hafa boðað til B opins fundar með foreldrum mánudaginn 27. febrúar þar sem sérfræðingar frá Eflu munu fara yfir niðurstöður sínar. Þar verða einnig fulltrúar frá umhverfis- og skipulagssviði, skóla- og frístundasviði og eignaskrifstofu auk stjórnenda Melaskóla.

Þá kemur fram í tölvupóstinum að fyrr um daginn verði fundað með starfsfólki.

Engin svör fyrr að loknum fundi

Þegar Vísir leitaði svara hjá Hörpu Reynisdóttur skólastjóra Melaskóla vísaði hún á Evu Bergþóru Guðbergsdóttur, samskiptastjóra hjá Reykjavíkurborg.

Í skriflegu svari Evu kemur fram að haldnir verði fundir með starfsfólki og foreldrum á mánudag þar sem verður farið yfir þessi mál með sérfræðingum og niðurstöður kynntar. Ekki hafi verið hægt að halda fundina fyrr vegna vetrarleyfis. Þá muni ekki verða veittar upplýsingar til fjölmiðla fyrr en í framhaldi af þessum fundum.


Tengdar fréttir

Mygla í nokkrum leikskólum til viðbótar, borgin bregðist hraðar við

Mygla hefur fundist á nokkrum leikskólum í Reykjavík og bætast þeir þar með í sístækkandi hóp grunn-og leikskóla sem glíma við mygluvanda. Sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs segir mun betur fylgst með húsnæði en áður. Ekki er ljóst hvort myglan muni hafa áhrif á starfsemi skólanna.

Mygla í skólum - Áskorun til foreldrafélaga

Undanfarin misseri hafa foreldrafélög víða um land verið iðin við að skora á yfirvöld í viðkomandi sveitafélögum að gera úrbætur tengdar myglu, gera kröfu um endurbætur húsnæði og/eða byggingu nýs húsnæðis og allt eru þetta réttmætar kröfur.

Mygla fannst í aðal­byggingu Kárs­nes­skóla við Vallar­gerði

Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði nú á dögunum og hefur tilkynning verið send á foreldra. Myglan kom upp í álmu þar sem fyrsti og þriðji bekkur er til húsa en aðgerðir vegna myglunnar eru nú þegar hafnar. Sex kennslustofur verða rýmdar og voru tvær rýmdar um leið og grunur lék á að um myglu væri að ræða, áður en niðurstöður lágu fyrir.

Vona að allir Hagskælingar geti verið í skólanum næsta vor

Stór hluti nemenda við Hagaskóla verður við nám í bráðabirgðahúsnæði í Ármúla fram yfir næstu áramót. Stefnt er á stækkun skólans samhliða endurbótum vegna mygluvandamála. Áætlaður framkvæmdatími er þrjú ár.

Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu

Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu.

Meiri mygla fannst í Lauga­lækjar­skóla

Búið er að loka þremur skólastofum í Laugalækjarskóla vegna myglu. Flytja þarf skólastarfið tímabundið í annað húsnæði á meðan viðgerðir fara fram eftir áramótin. 

Nemendur kippa sér lítið upp við breytingarnar í Hagaskóla

Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega.

Níundi bekkur Hagaskóla verður í Háskólabíói fram að jólum

Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×