Handbolti

„Þetta eru fáránleg forréttindi“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson á hliðarlínunni í leik kvöldsins.
Snorri Steinn Guðjónsson á hliðarlínunni í leik kvöldsins. Vísirr/Hulda Margrét

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var eðlilega stoltur af sínu liði eftir öruggan sex marka sigur gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Með sigrinum lyftu Valsmenn sér upp í þriðja sæti B-riðils og eiga enn góðan möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.

Leikruinn fór hins vegar ekki vel af stað hjá Valsmönnum og liðið skoraði aðeins fjögur mörk á frystu 15 mínútum leiksins, ásamt því að fyrirliðinn Alexander Örn Júlíusson fékk að líta vafasamt beint rautt spjald.

„Byrjunin var svolítið erfið og við klikkuðum á einhverjum þrem eða fjórum hornafærum og allt það. En við vorum samt svona svolítið á hælunum fannst mér, en við misstum þá ekkert of langt fram úr okkur,“ sagði Snorri Steinn í leikslok.

„Við mjökuðum þessu svona hægt og rólega fyrstu tuttugu og komust svo yfir fyrir hálfleik og þá leið mér þokkalega með þetta.“

Gestirnir frá Benidorm byrjuðu síðari hálfleikinn þó nokkuð vel og söxuðu á forskot Valsmanna, en Valsliðið tók völdin á ný og byggði upp öruggt forskot. Snorri vildi ekki segja til um hvað hefði klikkað hjá gestunum og einblíndi frekar á það sem sínir menn gerðu rétt.

„Þú verður að spyrja þjálfarann þeirra að því. Við náðum að leysa þetta sjö á sex og ég hef ekki tölu á því hvað við skoruðum oft yfir allan völlinn. Við erum bara að fá fullt af auðveldum hlutum og þvinguðum þá í tæknifeila og annað slíkt sem þeir eru ekkert rosalega þekktir fyrir. Það sem við gerðum gekk upp og eftir erfiða byrjun fannst mér við finna betri takt sóknarlega eftir því sem leið á leikinn.“

Eins og áður segir fékk fyrirliði Vals, Alexander Örn Júlíusson, að líta beint rautt spjald snemma leiks.

„Ég sá það ekki einu sinni og var ekki nálægt því að sjá það þannig ég ætla ekki einu sinni að reyna að hafa skoðun á því.“

Með sigrinum í kvöld lyfta Valsmenn sér upp í þriðja sæti B-riðils. Liðið mætir franska liðinu PAUC sem hefur tapað fjórum leikjum í röð í Evrópudeildinni eftir tap gegn Flensburg í kvöld næstkomandi þriðjudag og Snorri segir mikilvægi þess leiks ekki minna en í kvöld.

„Við eigum nú einn mjög mikilvægan á föstudaginn líka þannig við skulum byrja á honum, en það segir sig sjálft og við vissum það fyrirfram að við þyrftum meira en þennan leik í kvöld. Þetta var mikilvægur leikur til þess að koma okkur í þá stöðu að geta komið okkur áfram í þessum riðli og við þurfum þvílíkan leik á þriðjudaginn. Ég get ekki einu sinni lýst því hvað við þurfum mikinn stuðning.“ 

„Þetta er geggjað að spila þessa leiki og þetta eru fáránleg forréttindi sem margir af strákunum gera sér bara ekki alveg grein fyrir. Að spila fyrir sitt félag í svona keppni og umgjörð. Bara plís, plís, plís troðfyllið húsið fyrir okkur og þá gerum við okkar besta til þess að komast áfram.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×