Handbolti

Fimmtíu bestu: Börsungahrellirinn

Halldór Ingólfsson endaði í 3. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Halldór Ingólfsson varð sex sinnum Íslandsmeistari með Haukum, allt eftir þrítugt. vísir

Halldór Ingólfsson endaði í 3. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

grafík/hjalti

Halldór er í 3. sæti á þessum lista en tímabilið sem er hér undir spannar samt varla helminginn af ferli hans. Hann spilaði á þremur mismunandi áratugum og er þriðji markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi með 1.648 mörk. Aðeins Valdimar Grímsson (1.903 mörk) og Bjarki Sigurðsson (1.760 mörk) hafa skorað meira.

Halldór gaf Haukum öll sín bestu ár. Hann varð sex sinnum Íslandsmeistari með liðinu, þrisvar sinnum bikarmeistari og fimm sinnum deildarmeistari. Fjórtán stórir titlar, takk fyrir.

Halldór að búa sig undir að fara framhjá Ægi Hrafni Jónssyni.fréttablaðið

Það aðdáunarverðasta við feril Halldórs er hversu lengi hann spilaði á hæsta getustigi og hversu vel hann entist. Fertugur var hann enn í nokkuð stóru hlutverki hjá Íslandsmeistaraliði Hauka. Og ferilinn hans toppaði eftir þrítugt. Þá byrjaði hann að raka inn titlum og vann meðal annars alla sex Íslandsmeistaratitlana sína. Þá spilaði hann líka á sínu eina stórmóti með íslenska landsliðinu, EM 2002.

Bestu leiki sína á ferlinum spilaði Halldór gegn Barcelona í 3. umferð EHF-bikarsins haustið 2001, þá 33 ára. Í leikjunum tveimur skoraði hann samtals 26 mörk. Fjórtán þeirra komu í útileiknum í Barcelona. Ein besta vörn heimsins réði ekkert við hann í þessum leikjum sem eru ein stærsta rósin í hans hnappagati. 

Halldór er þriðji markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi.vísir/vilhelm

„Ingólfsson er stórgóður leikmaður og við áttum í miklu basli með að stöðva hann. Bæði er hann góður skotmaður og sérlega lunkinn að finna smugur á vörninni,“ sagði Valero Rivera, þjálfari Barcelona, eftir leikina tvo.

Lunkinn er kannski lýsingarorðið sem nær best yfir Halldór. Hann hafði ekki sentímetra eða kílóafjölda með sér í liði en var með frábæra skottækni og gríðarlega mikinn leiksskilning. Svo hafði hann vopnið sem alltaf beit.

Galdramaður af guðs náð. Einn besti gegnumbrotsmaður sem leikið hefur á Íslandi. Hafði afburða skottækni. Hæðin hjálpaði honum hins vegar ekki en þrátt fyrir það var Halldór leikmaður sem allir þurftu að óttast. Gat unnið, og vann, marga leiki upp á sitt einsdæmi og ekki margir sem geta státað af því.

Gaupi

Hliðarfintan hans Halldórs klikkaði sjaldan og þótt varnarmenn vissu alltaf hvað hann væri að fara að gera slapp hann alltaf í gegn. Og fertugur var enn að smalla ökklunum á sér miklu yngri leikmönnum. 

Halldór átti sínar bestu stundir í rauðu Haukatreyjunni og hann eltist eins og gott rauðvín.


Tengdar fréttir






×