Viðskipti erlent

NASA og Boeing þróa mun sparneytnari farþegaþotu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Þotan sýnd í tveimur mismunandi lengdum. Hugmyndin er að hún verði hávængja með styrktarbitum frá væng í neðri hluta skrokks. Vængirnir verða þynnri og lengri en nú tíðkast og með mun minni loftmótstöðu.
Þotan sýnd í tveimur mismunandi lengdum. Hugmyndin er að hún verði hávængja með styrktarbitum frá væng í neðri hluta skrokks. Vængirnir verða þynnri og lengri en nú tíðkast og með mun minni loftmótstöðu. Boeing

Bandaríska geimferðastofnunin NASA og Boeing-flugvélaframleiðandinn hafa tekið höndum saman um að þróa nýja tegund farþegaþotu sem á að vera þrjátíu prósent sparneytnari en þær hagkvæmustu sem finnast í dag.

Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir af væntanlegu útliti þotunnar. 

Nýjum kynslóðum flugvéla hefur jafnan fylgt meiri hagkvæmni. Þannig eyða nýju Boeing Max-þotur Icelandair 27 prósent minna eldsneyti á hvert sæti á hvern floginn kílómetra miðað við Boeing 757 þoturnar, sem þó spöruðu álíka mikið þegar þær leystu Boeing 727 og DC-8 þoturnar af hólmi þrjátíu árum áður, með samsvarandi minnkun útblásturs koltvísýrings.

Ýmsar hugmyndir að nýjum gerðum flugvéla sem NASA er að skoða í leit að loftslagsvænni framtíð.NASA

Bandarísk stjórnvöld hafa markað þá stefnu að búið verði að núllstilla kolefnislosun flugsins fyrir árið 2050. Sem lið að því markmiði rannsakar geimferðastofnunin nýjar lausnir í hönnun flugvéla og í gær kynnti forstjóri NASA samstarfssamning við Boeing um að þróa enn sparneytnari farþegaþotu á næstu sjö árum. Hann sýndi um leið líkan af hávængju með styrktarbitum, rétt eins og litlar Cessna-kennsluflugvélar eru.

Bill Nelson, forstjóri NASA, sýndi líkan af framtíðarþotunni á fréttamannafundi í höfuðborginni Washington gær um leið og hann kynnti að stofnunin hefði valið Boeing til samstarfs um að þróa flugvélina.NASA/Joel Kowsky

Þotan verður þó álíka stór og algengustu farþegavélar en með þynnri og lengri væng. Þessi nýja vænghönnun er sögð lykillinn að þrjátíu prósent sparneytnari flugvél, miðað við þær hagkvæmustu á markaðnum í dag.

Farþegarýmið býður upp á einn gang í miðjunni og þrjú sæti hvoru megin, eins og algengast er í farþegafluginu.Boeing

NASA og Boeing hyggjast saman verja yfir 160 milljörðum króna til verkefnisins. Þau stefna að því að tilraunaflugvél í fullri stærð verði tilbúin fyrir lok áratugarins og vonast til að hún verði komin í notkun flugfélaga upp úr 2030.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin

Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð.

Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum

Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar.

For­setinn fyrstur far­þega í raf­magns­flug­vél

Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×