Innlent

Enga myglu að finna þar sem hælis­leit­endur eru hýstir í Grinda­vík

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Karl Pétur Jónsson, upplýsingafulltrúi Framkvæmdasýslunnar segir enga myglu að finna í húsnæði flóttafólks í Grindavík.
Karl Pétur Jónsson, upplýsingafulltrúi Framkvæmdasýslunnar segir enga myglu að finna í húsnæði flóttafólks í Grindavík. Vísir/Vilhelm

Enga myglu er að finna í Festi í Grindavík, þar sem Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur. Forstjóri stofnunarinnar segir mikla áskorun bíða hennar á árinu vegna fjölda flóttamanna sem stefna hingað til lands. Gríðarlegur skortur sé á húsnæði.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um að bæjarstjórn Grindavíkur hafi mótmælt ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hýsa flóttamenn á hótelinu Festi í bænum.

Hjálmar Hallgrímsson forseti bæjarstjórnar furðaði sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar, til dæmis að málið hafi verið framkvæmt án samráðs við bæjarstjórn.

„Við hefðum sjálfsagt átt að hafa meira samráð við þá áður en það var ýmislegt sem kom til. Veikindi hjá okkur og annir. Svo er það stundum þannig að Framkvæmdasýslan, sem sér um að finna húsnæði handa okkur, hún finnur húsnæðið og við erum að hlaupa og með fullt af fólki sem þarf að koma undir þak. Þá gefst ekki alltaf tækifæri til að vera með nógu góðan fyrirvara,“ segir Unnur Sveinsdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. 

Hún fundaði með Grindvíkingum í morgun og var niðurstaða fundarins að auka samráð og að flóttafólkið fái að vera þarna áfram. Grindvíkingar lýstu áhyggjum af fólkinu vegna myglu, sem upp kom í húsnæðinu síðasta vor, en þar þurfti að hætta starfsemi hótels vegna hennar.

Myndu aldrei leigja heilsuspillandi húsnæði

Það þurfti að hætta þarna starfsemi þarna í fyrravor vegna myglu. Er húsnæðið myglað?

„Nei, það er það ekki. Það kom upp mygla í einu herbergi af 38 fyrir ári síðan. Eigandi hússins greip til viðeigandi ráðstafana og sú úttekt sem við höfum frá verkfræðistofu sýnir að húsnæðið er í fínu lagi,“ segir Karl Pétur Jónsson, upplýsingafulltrúi Framkvæmdasýslu - Ríkiseigna. 

Stöðva þurfti starfsemi hótelsins í Festi í Grindavík í fyrravor vegna rakaskemmda og myglu. Vísir/Egill

Hann skilji vel að margir Íslendingar verði hræddir þegar minnst er á myglu, sérstaklega í ljósi ítrekaðra myglufunda í húsnæði hér undanfarin misseri. 

„En við myndum aldrei leigja húsnæði sem er heilsuspillandi,“ segir Karl Pétur. 

Hefðu viljað vita fyrr af áætlunum

Annað svipað mál hefur komið upp á Laugarvatni en þar á að hýsa tugi flóttamanna í gamalli heimavist Háskóla Íslands. Sveitarstjórn var ekki gert viðvart um fyrirætlanirnar fyrr en nýlega og heilbrigðiseftirlitið gert athugasemdir vegna rakaskemmda.

„Þetta er gríðarlega stórt hús og misjafnt hvað er að því eftir hvar þú drepur niður fæti,“ segir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, í samtali við fréttamann okkar Magnús Hlyn Hreiðarsson.

Sveitarstjórnin hafi lagt á það áherslu að húsnæðið verði ekki tekið til notkunar séu aðstæður þar innandyra heilsuspillandi. 

„Það hefði verið gott að vita af þessu fyrr og það væri gott ef sveitarfélögin hefðu eitthvað um þetta að segja. Þau hafa það ekki.“

Mikil áskorun framundan að finna húsnæði fyrir flóttafólk

Vinna er hafin við að laga það sem þarf í húsinu og því tiltölulega stutt í að hægt sé að taka það í notkun. Ástandið á því sé almennt gott.

„Og þar eru ekki þannig rakaskemmdir að það hafi ollið myglu,“ segir Karl Pétur. 

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.Vísir/Einar

Fimm þúsund hælisleitendur komu til landsins í fyrra og von er á öðrum eins fjölda á þessu ári.

„Mesta áskorunin er að finna húsnæði fyrir þetta fólk en við megum ekki gleyma því sem þjóð að við erum að taka á móti fólki sem er að flýja stríð og aðrar hörmungar,“ segir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar.


Tengdar fréttir

Segir að sam­ráð hefði mátt vera meira en flótta­mennirnir verði á­fram í Grinda­vík

Flóttafólk, sem Vinnumálastofnun hefur komið fyrir á hótelinu Festi í Grindavík, verður þar áfram. Bæjarstjórn Grindavíkur gagnrýndi stofnunina fyrir að koma fólkinu þar fyrir í gær og deildi á um hvort stofnunin hafi haft heimild til að koma fólkinu þar fyrir. Forstjóri Vinnumálastofnunar fundaði með Bæjarráði í morgun og segir hann hafa verið farsælan. 

Vilja loka hús­næði sem hýsir hælis­leit­endur

Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags- og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti lokað húsnæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×