TH0R atkvæðamestur í auðveldum sigri Dusty á TEN5ION

Snorri Rafn Hallsson skrifar
THOR

Leikurinn fór fram í Ancient og þar sem TEN5ION vann hnífalotuna hóf liðið leikinn í vörn. Í fyrstu lotu missti Dusty tvo leikmenn við það að komast inn á sprengjusvæðið og lokaði Pressi lotunni vel með því að fella næstu tvo og aftengja sprengjuna. Betur tókst þó til í næstu tilraunum Dusty sem sprengdi sprengjuna í næstu fjórum lotum og vann fimm í röð.

Leikmenn beggja liða hittu vel en Dusty betur og var liðið öruggara í aðgerðum sínum, eignaði sér miðjuna hvað eftir annað og náði fellunum þegar á reið. Framan af voru það EddezeNNN, StebbiC0C0 og PalliB0ndi sem drógu vagninn fyrir Dusty. Pressi átti stóran leik fyrir TEN5ION sem notaði tvo vappa í uppstillingu sinni með slæmum árangri. Voru þeir fyrir vikið ragari við að taka áhættu. Dusty hafði því yfirhöndina í fyrri hálfleik. Þreföld fella frá TH0R í upphafi 14. lotu setti punktinn yfir i-ið og Dusty fór með gott forskot inn í síðari hálfleikinn.

Staðan í hálfleik: Dusty 11 – 4 TEN5ION

Dusty voru enga stund að vinna skammbyssulotuna í síðari hálfleik og TH0R varð felluhæstur leikmanna Dusty í þeirri næstu með þrefaldri fellu. Einarvac tryggði TEN5ION eina stig liðsins í síðari hálfleik í 18. lotu. Svar Dusty kom strax í næstu lotu þegar EddezeNNN slökkti í TEN5ION mönnum með því að fella þá alla einn síns liðs og varð eftirleikurinn auðveldur. StebbiC0C0 innsiglaði svo sigurinn í 21. lotu með því að fella Moshii.

Lokastaða: Dusty 16 – 5 TEN5ION

Stuttri sigurgöngu TEN5ION er því lokið í bili en Dusty heldur í við toppliðin Atlantic og Þór með sigrinum.

Næstu leikir liðanna: 

  • Breiðablik – TEN5ION, þriðjudaginn 17/1 kl. 20:30
  • Dusty – Fylkir, fimmtudaginn 19/1 kl. 20:30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira