Orð Svanhildar sýni skilningsleysi og sendi erfið skilaboð Ólafur Björn Sverrisson skrifar 10. janúar 2023 22:37 Þórunn Sveinbjarnardóttir (t.h.) og Bryndís Haraldsdóttir (t.v.) tókust á um orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs sem spyr hvenær laun heilbrigðisstarfsfólks séu nógu góð. vísir/vilhelm Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs endurspegla það gildismat samfélagsins að störf kvenna megi verðleggja hvernig sem er. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafnar því að hennar flokkur sé í aðför gegn stéttinni og telur að einkarekstur innan heilbrigðiskerfisins geti bætt kjör starfsfólks.
Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, vakti máls á launadeilu heilbrigðisstarfsfólks í Silfrinu á Ríkisútvarpinu á sunnudag og spurði hvenær laun þeirra væru nógu góð. Í Facebookfærslu Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þar sem hún vísar til ummæla Svanhildar, segir hún Sjálfstæðisflokkinn í herferð gegn gildi opinberra starfa „og fyrst skal taka niður stóru kvennastéttirnar í heilbrigðiskerfinu.“ Þær Þórunn og Bryndís ræddu málið í Reykjavík síðdegis. „Mér finnst þessi framsetning Svanhildar í Silfrinu til þess gerð að ögra þeim sem voru að hlusta. En líka til þess gerð að taka augun okkar af því sem skiptir máli,“ segir Þórunn sem finnst Svanhildur senda ákveðin skilaboð til samfélagsins. „Æ vinnið bara vinnuna ykkar og hættið þessu kvarti, þið fáið nóg. Það endurspeglar verðmætamat á störfum kvenna,“ segir hún. Látið sé að því liggja að heilbrigðisstarfsfólk séu afætur á samfélaginu og eigi laun sín ekki skilið. „Ég mótmæli því harðlega að framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs skuli ganga fram í opinberri umræðu með þessum hætti og mér skilst að hún sé með tæplega 2 milljónir króna á mánuði.“ Beindi sjónum að einkarekstri Bryndís Haraldsdóttir hafnar því hins vegar alfarið að Sjálfstæðisflokkurinn sé í skipulagðri aðför gagnvart opinberum stéttum. „Langt, langt, langt því frá,“ segir hún. „Að lesa þetta úr orðum Svanhildar Hólm sem veltir því upp: hvað er eðlilegt að greiða í laun? Þetta eru þessi meðalheildarlaun sem þessar stéttir fengu. Og ég held að það sé líka bara jákvætt í umræðunni að við séum líka að ræða tölur. Hver eru launin? En ekki bara að þau séu lág.“ Þá segir Bryndís Þórunni einnig „pólarísera“ umræðuna með sinni orðræðu. Hún bendir á að stærsti hluti skattfé renni í að halda uppi öflugu velferðarkerfi. „Ég er alveg til í að fara í lið með Þórunni Sveinbjarnardóttur og fleirum um að tala um það, að við þurfum að bæta kjör kvennastétta. Ég held líka að við þurfum að horfa á ýmsar leiðir varðandi hvernig við gerum það. Er ekki eitthvað óeðlilegt við það að fólk fari í háskóla og mennti sig til starfa og hafi svo raunverulega bara val um að vinna hjá einum vinnuveitanda, það er ríkinu,“ segir Bryndís og leggur til að opna verði heilbrigðiskerfið fyrir einkarekstri. Þannig sé hægt að auka virði kvennastétta. Bannað að spyrja hvenær nóg sé nóg? Þórunn segir hins vegar að samkeppni um starfskrafta heilbrigðisstarfsfólks sé til staðar að einhverju leyti. Hins vegar bæti einkarekstur ekki stöðuna þar sem framlög renni enn úr ríkissjóði. „Heilbrigðiskerfið okkar hefur auðvitað verið vanfjármagnað og fjársvelt áratugum saman,“ segir Þórunn og segir íslenskt fagfólk ekki treysta sér til að vinna við slíkar aðstæður. „Þá finnast mér það ansi hreint erfið skilaboð inn í umræðuna að segja bara: „Hvað er nóg? Hvað er nóg að greiða þessari konu fyrir að vera á sólarhringsvöktum allt árið í mjög erfiðri vinnu?““ „Er bannað að spyrja svona spurninga?,“ spyr Kristófer Helgason, þáttastjórnandi þá. „Nei það er ekkert bannað að spyrja svona spurninga. Mér finnst bara nálgunin sýna skilningsleysi og í rauninni endurspegla það gildismat sem er gegnumgangandi í samfélaginu á því að störf kvenna megi bara verðleggja hvernig sem er,“ segir Þórunn.
Heilbrigðismál Rekstur hins opinbera Landspítalinn Kjaramál Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira