Körfubolti

Sara setti átta í mikilvægum sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir gefur góð ráð.
Sara Rún Hinriksdóttir gefur góð ráð. Vísir/Hulda Margrét

Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir skoraði átta stig fyrir Faenza er liðið vann góðan tíu stiga sigur gegn Libertas Moncalieri í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 72-62.

Liðin eru í harðri baráttu um miðja deild og því um mikilvægan leik að ræða. Jafnræði var með liðunum frá upphafi til enda og það voru gestirnir í Libertas Moncalieri sem leiddu með tveimur stigum í hálfleik, staðan 37-35.

Sara og stöllur hennar reyndust hins vegar sterkari í síðari hálfleik og snéru taflinu sér í hag strax í þriðja leikhluta. Heimakonur sigldu svo að lokum heim tíu stiga sigri, 72-62.

Faenza situr nú í tíunda sæti deildarinnar með tíu stig eftir 15 leiki, tveimur stigum á eftir Libertas Moncalieri sem situr sæti ofar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×