Sérstakar kröfur stjarnanna: Hvolpar, bóluplast og gervilimur Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 6. janúar 2023 14:30 Prince, Rihanna, Jennifer Lawrence og Pharrell Williams eru á meðal þeirra stjarna sem hafa sett fram athyglisverðar kröfur í gegnum tíðina. getty/Kevin Winter-Kevin Mazur-Amy Sussman-Frazer Harrison Þegar heimsfrægar stjörnur koma fram gera þær oftar en ekki kröfu um að ákveðnir hlutir séu til staðar í búningsherbergi þeirra. Þetta getur til dæmis verið ákveðinn matur, nóg af vatni eða einhver sérstakur aðbúnaður sem óskað er eftir. Sumar kröfur eru þó athyglisverðari en aðrar. Þeir Rikki G og Egill Ploder fóru yfir málið í Brennslunni.
Hvolpar og ilmkerti Fyrsta stjarnan sem þeir tóku fyrir er tónlistarkonan vinsæla Mariah Carey. „Þegar hún kom fram í einhverjum breskum morgunþætti, þá krafðist hún þess að herbergið hennar væri með tólf hvítum labrador hvolpum,“ segir Rikki G. Tónlistarkonan er þekkt fyrir það að vera mikil hundakona og hefur hún reglulega komið fram með einn af hundunum sínum. Næst á lista er tónlistarkonan Rihanna. Hún á að hafa sett fram sérstaka kröfu fyrir tónleikaferðalag sitt árið 2010. „Í hverju búningsherbergi þurfti að vera eitthvað sem heitir „Archipelago Black Forest Candle“. Það er einhvers konar kertategund sem er mjög erfitt að fá. Þau þurftu að vera tuttugu og fimm og það þurfti að raða þeim í einhvers konar hring. Það var þvílíkt vesen að finna þetta og það þurfti að kveikja á kertunum þrjátíu mínútum áður en hún mætti á staðinn.“ Rihanna er greinilega sérstakur aðdáandi ilmkerta.getty/Tim P. Whitby Innrömmuð mynd af geimfara og Kardashian tjald Tónlistarmaðurinn Pharell Williams er með nokkuð sérstaka ósk. „Í hvert skipti sem hann hélt tónleika, þá þurfti hann að vera með herbergi þar sem þurfti að vera búið að innramma mynd af geimfaranum Carl Sagan í ramma sem var einn sinnum einn meter.“ Williams er sagður vera sérstakur aðdáandi geimfarans. Talið er að þessi undarlega krafa hafi verið tilkomin vegna þess að teymi Williams hafi tekið upp á því að hengja upp myndir af Carl Sagan í tónleikarútum Williams. Hann hafi kunnað vel að meta það og ákveðið að geimfarinn þyrfti einnig að fylgja sér inn í búningsherbergi. Leikkonan Jennifer Lawrence er þekkt fyrir góðan húmor. Það er þó ekki alveg ljóst hvort hennar ósk hafi verið borin upp í gríni eða alvöru. „Hún bað alltaf um Kardashian tjald. Það þurfti að tjald í búningsherberginu með myndum af Kardashian systrum sem hún gat farið inn í og hugsað. Það þurfti að vera sjónvarp inni í tjaldinu með Keeping Up With The Kardashians rúllandi. Það þurftu einnig að vera sérstakar tyggjótegundir og myndir af Kardashian systrum og hún kallaði þetta My Happy Place.“ Jennifer Lawrence er mikill Kardahian aðdáandi.Tonight Show Hárkolluherbergi og bóluplast Leikarinn Kirk Cameron er sagður vera með það í samningi sínum að hann taki aldrei þátt í kossasenum. Hann kyssi einungis eiginkonu sína. Þá er leikarinn Garey Busey sagður vera með þá kröfu að það séu engir speglar í búningsherbergjum hans. Tónlistarkonan Cher er sögð fara fram á það að hún fái ávallt tvö búningsherbergi þegar hún kemur fram „Hún þarf sérstakt búningsherbergi fyrir allan hárkollurnar sínar, þær skipta víst hundruðum,“ segir Rikki. Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er líka með sérstaka ósk þegar kemur að umhverfi sínu. „Hefuru tekið eftir því hvað hún klæðist mikið hvítu? Það er mikið hvítt í kringum hana. Málið er það að öll herbergi sem hún er í þurfa að vera eins næpuhvít og hægt er, hvítir veggir, hvít blóm, hvít húsgögn, hvít kerti,“ en söngkonan er sögð sjúk í hvítan. Þá er tónlistarmaðurinn Prince sagður hafa verið með ákveðnar sérþarfir. „Alltaf þegar hann kom inn í búningsherbergi þá þurfti að vera til bóluplast til að sprengja. Það var eitthvað róandi fyrir hann.“ Prinsinn er sagður hafa verið sjúkur í búbbluplast.Getty/Peter Dazeley-Michael Ochs Archives Beikon, gervilimur og Vísindakirkjan Kröfur hljómsveitameðlima Metallica eru sennilega með þeim eðlilegri á þessum lista. „Þegar þeir voru á tónleikaferðalagi árið 2004, sem er árið sem þeir komu til Íslands, þá var krafa að það væri nýsteikt beikon í búningsherberginu þeirra þegar þeir mættu. Þeir eru beikon sjúklingar.“ Leikarinn Jack Nicholson er sagður hafa gert ansi einkennilega kröfu við tökur á kvikmyndinni Departed árið 2006. „Hann setti þá kröfu að í einu atriði þyrfti að koma fram risa gervilimur og í annarri senu þyrfti að koma fram að hann væri að snorta nýpressað bólivískt yayo af berum rasskinnum kvenmanns,“ segir Rikki. Síðast en ekki síst er leikarinn Tom Cruise sagður hafa gert undarlega kröfu sem kemur þó líklega fáum á óvart. „Þegar hann var að leika í myndinni War of The Worlds, þá var hann svo mikið í Vísindakirkjunni að hann lét setja upp tjaldbúðir með starfsfólki Vísindakirkjunnar sem hann gat leitað til á milli atriði.“ Hér að neðan má heyra umræðuna úr Brennslunni í heild sinni.
Hollywood Brennslan Mest lesið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Anthony Head er látinn Lífið Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Lífið Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira