Handbolti

Ómar Ingi og Sandra Erlings Hand­knatt­leiks­fólk ársins 2022

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sandra Erlingsdóttir og Ómar Ingi Magnússon eru Handknattleiksfólk ársins 2022.
Sandra Erlingsdóttir og Ómar Ingi Magnússon eru Handknattleiksfólk ársins 2022. Vísir/Hulda Margrét

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta íslenska landsliðsins og Þýskalandsmeistara Magdeburgar, og Sandra Erlingsdóttir, leikstjórnandi TuS Metzingen í Þýskalandi og íslenska landsliðsins, eru Handknattleiksfólk ársins að mati Handknattleikssambands Íslands.

Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum HSÍ. Þar segir um hinn 25 ára gamla Ómar Inga:

Ómar Ingi í leik með Magdeburg.vísir/Getty

„Ómar Ingi var Þýskalandsmeistari í handknattleik í vor auk þess sem lið hans vann IHF Super Globe annað árið í röð og lenti í 2. sæti í Evrópudeildinni í handknattleik. Ómar Ingi var næst markahæstur allra leikmanna í deildinni en í lok tímabilsins var hann valinn besti leikmaður þýsku deildarinnar.“

„Með landsliðinu náði Ómar 6. sæti á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu þar sem hann var valinn í lið mótsins. Ómar Ingi varð jafnframt markakóngur mótsins en hann skoraði 59 mörk á mótinu.“

„Undanfarin ár hefur Ómar stimplað sig inn sem leikmaður á heimsmælikvarða, bæði með sínu félagsliði og landsliði.“

Alls hefur Ómar Ingi spilað 66 A-landsleiki og skorað í þeim 2016 mörk.

Sandra Erlingsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.Vísir/Hulda Margrét

Um Söndru segir: „Lék með EH Aalborg í Danmörku í vor þar sem hún var valin besti leikmaður liðsins annað árið í röð en liðið var í harðri baráttu um að komast í dönsku úrvalsdeildina. Á vormánuðum samdi Sandra við þýska liðið TuS Metzingen og hefur leikið stór hlutverk með liðinu í þýsku úrvalsdeildinni. Auk þess hefur Sandra verið í lykilhlutverki með A landsliði kvenna á árinu.“

Sandra er uppalin í Vestmannaeyjum en lék með bæði ÍBV og HK í yngri flokkum ásamt því að vera um tíma með Füchse Berlín í Þýskalandi þegar fjölskylda hennar bjó þar.

„Þegar hún flutti aftur heim hóf hún 18 ára að leika með meistaraflokki ÍBV og lék þar í 2 ár þar til hún skipti til Vals sumarið 2018. Hún varð Íslandsmeistari með Val vorið 2020 og fór í framhaldi í atvinnumennsku.“

Sandra hefur alls leikið 16 A-landsleiki og skorað í þeim 65 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×