WZRD göldróttur í Ancient

Snorri Rafn Hallsson skrifar
wzrd

Fyrri leikur liðanna fór einnig fram í Ancient kortinu þar sem úrslitin réðust í tvöfaldri framlengingu og SAGA stóð uppi sem sigurvegari 22–19.

Í þetta skiptið hóf SAGA leikinn í vörn eftir að DOM tryggði liðinu sigur í hnífalotunni. Strax í fyrstu lotu aftengdi SAGA sprengju TEN5ION og vann einnig næstu lotu. TEN5ION tókst hins vegar að jafna leika snögglega og komast í stöðuna 3–2 en það var í eina skiptið sem liðið komst yfir í leiknum.

SAGA vann næstu 10 loturnar í leiknum. ADHD var öflugur á vappanum sem ásamt DOM og WZRD hélt uppi þéttum vörnum fyrir liðið. Snyrtilegar aðgerðir og framarleg vörn gerði það að verkum að hvorki gekk né rak hjá TEN5ION.

Staðan í hálfleik: SAGA 12 – 3 TEN5ION

TEN5ION gekk mun betur í síðari hálfleik þegar liðið spilaði í vörn. Oftar en ekki tókst þeim að aftengja sprengjur SAGA sem náði svo gott sem aldrei að tengja saman lotur. TEN5ION saxaði því jafnt og þétt á forskotið en það dugði ekki til.

Skoon rak smiðshöggið á sigur SAGA og sat fyrir Capping þar sem hann gerði tilraun til að aftengja sprengjuna í 27. lotu.

Lokastaða: SAGA 16 – 11 TEN5ION

Næstu leikir liðanna:

  • SAGA – Þór, þriðjudaginn 6/12 kl. 20:30
  • TEN5ION – Fylkir, fimmtudaginn 8/12 kl. 21:30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira