Viðskipti innlent

Tugmilljarða hagnaður hjá Landsvirkjun

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sogsvirkjun
Sogsvirkjun Landsvirkjun

Landsvirkjun hagnaðist um 31 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er besta rekstrarniðurstaða á þessu tímabili í sögu fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu Landsvirkjunar þar sem helstu niðurstöður níu mánaða uppgjörs fyrirtækisins eru reifaðar.

Hagnaður tímabilsins var 31 milljarður króna. Á sama tímabili síðasta árs nam hagnaðurinn 13,3 milljörðum króna.

Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 35 milljörðum króna. Er um að ræða 56,8 prósent hækkun á milli ára.

Rekstrartekjur námu 72,2 milljörðum króna en voru 51,6 milljarðar króna yfir sama tímabil á síðast ári. Þær hækka því um 25 prósent.

Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.Vísir/Vilhelm

Handbært fé frá rekstri nam 51 milljarði króna sem er töluverð hækkun frá sama tímabili á síðasta ári. Þá nam handbært fé frá rekstri 31,1 milljarði króna.

Meðalverð til stórnotenda án flutnings var 42,1 dollarar á megavattstund, sem er hæsta verð á fyrstu níu mánuðum ársins í sögu Landsvirkjunar. Á gengi dagsins í dag er það um bil sex þúsund krónur.

„Rekstrarniðurstaða fyrstu níu mánaða ársins var betri en nokkru sinni fyrr í sögu Landsvirkjunar. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði jókst um 57% miðað við sama tímabil í fyrra og nam rúmum 35 milljörðum króna. Þessa aukningu má einkum rekja til skýrra rekstrarmarkmiða og hækkunar á raforkuverði til stórnotenda, en hana má meðal annars rekja til endursamninga undanfarinna ára sem tryggt hafa að flestir viðskiptavinir Landsvirkjunar borga nú verð sem er sambærilegt við það sem gengur og gerist í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við, er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunnar í tilkynningu fyrirtækisins.

Þar segir að rekstur aflstöðva hafi gengið vel á árinu þrátt fyrir krefjandi aðstæður vegna dræms innrennslis til lóna og tíðra óveðra.

„Fjölbreytt ný eftirspurn eftir raforku er bæði frá núverandi viðskiptavinum og áhugaverðum nýjum aðilum. Henni er því miður ekki hægt að mæta nema að takmörkuðu leyti, enda er orkukerfið fulllestað með tilliti til bæði afls og orku. Óhjákvæmilegt er að forgangsraða frekari sölu við þessar aðstæður,“ er einnig haft eftir Herði.

Fyrr á árinu samþykkti stjórn félagsins að greiða eiganda fyrirtækisins, íslenska ríkinu, fimmtán milljarða í arð fyrir árið 2021.


Tengdar fréttir

Tvö­falda þarf orku­fram­leiðsluna vegna orku­skiptanna

Tvöfalda þarf orkuframleiðslu í landinu á næstu átján árum til að ná fram markmiðum um orkuskipti miðað við núverandi orkunýtingu Íslendinga. Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir að flókið geti reynst að ná fram nauðsynlegri pólitískri samstöðu um þetta en telur alla sammála um markmiðin.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×