Lífið

Dansað inn í veturinn með hádegispartýi á Prikinu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Olga Maggý Erlendsdóttir og Rebekka Sól Þórarinsdóttir eru listhópurinn dans-í-space og munu stýra danspartýi á Prikinu í hádeginu á morgun.
Olga Maggý Erlendsdóttir og Rebekka Sól Þórarinsdóttir eru listhópurinn dans-í-space og munu stýra danspartýi á Prikinu í hádeginu á morgun. Berglaug

Áhugasamir dansarar geta glaðst yfir því að viðburðurinn Lunch Beat Reykjavík snýr aftur til borgarinnar í hádeginu á morgun með viðburði á Prikinu. DJ Margeir þeytir skífum og dansararnir Olga Maggý Erlendsdóttir og Rebekka Sól Þórarinsdóttir stýra dansgleðinni.

Reima á sig dansskóna

Lunch Beat er fjölþjóðlegt dansverkefni sem á rætur sínar að rekja til Svíþjóðar. Danshópurinn Choreography Reykjavík hélt viðburðaröð í Reykjavík frá árunum 2012-2016 við mikinn meðbyr.

Hafa nýir kyndilberar í formi dansarana Olgu Maggýjar og Rebekku Sólar, sem fara fyrir skapandi listahópnum dans.i.space, tekið við keflinu og endurvakið þessa viðburði.

Lunch Beat snýst um að dansa, fólk kemur saman í öruggu skjóli, hádegishlé frá vinnu eða dagsins verkefnum, og dansar saman í klukkustund. Boðið er upp á léttar veitingar og nú er kominn tími til að reima á sig dansskóna og dansa sig inn í veturinn,“ segir í fréttatilkynningu en viðburðinn hefst klukkan 13:00.

Gefa dansinum pláss

Blaðamaður heyrði í Rebekku Sól og spurði við hverju gestir mega búast.

„Stanslausu stuði náttúrulega og vonandi getur fólk aðeins tekið frí frá vinnunni sinni, komið og hugsað um eitthvað annað en skyldurnar sínar.“

Hún segir fleiri Lunch Beat viðburði vera í vinnslu og það sé ýmislegt um að vera hjá henni og Olgu Maggý.

„Það eru alls konar viðburðir framundan og það er allt eitthvað sem tengist dansi og gefur dansinum pláss.“

Aðspurð hvað henni finnist skemmtilegast við að dansa segir Rebekka:

„Það er svo margt sem manni dettur í hug en samt er svo erfitt að setja það í orð. Fyrir mig hjálpar það við að hugsa ekki um neitt annað en bara að dansa og sleppa mér. Það leyfir manni líka að vera bara maður sjálfur. Maður þarf ekkert að pæla í því hvernig maður lítur út.“

Fólk er því hvatt til sleppa allri sjálfsmeðvitund og einfaldlega njóta og dansa eins og enginn sé að horfa.

Viðburðurinn er hluti af Off-Venue dagskrá Iceland Airwaves sem hefst einmitt á morgun. Hér má finna stefnulýsingu LUNCH BEAT:

1. Ef þetta er þitt fyrsta skipti á Lunch Beat, þá þarftu að dansa.

2. Ef þetta er þitt þriðja eða fjórða skipti á Lunch Beat, þá þarftu að dansa.

3. Ef þú ert orðið of þreytt til að dansa á Lunch Beat, þá máttu vinsamlegast fá þér hádegismat annars staðar.

4. Bannað er að ræða vinnuna þína á Lunch Beat.

5. Á Lunch Beat eru allir sem viðstaddir eru dansfélagi þinn í klukkustund.

6. Allir Lunch Beat viðburðir skulu vera ein klukkustund að lengd.

7. Lunch Beat býður öllum gestum sínum upp á 1 x DJ-Set og næringu í einhverju formi.

8. Vatn er alltaf frítt og aðgengilegt á öllum Lunch Beat viðburðum.

9. Lunch Beat reynir að vera vímulaust umhverfi.

10. Lunch Beat getur verið sett upp hvar sem er, svo lengi sem viðburðirnir eru ekki í fjáröflunarskyni, eru opnir almenningi, og unnir undir þessari stefnulýsingu.

„Notkun stórra myndavéla, flass eða vídeóvéla er ekki leyfð án leyfis,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.


Tengdar fréttir

„Goðsagnakennd djammkvöld“

„Mánudagsklúbburinn á Prikinu hefur fengið endurvakningu lífdaga. Goðsagnakennd djammkvöld hér á árum áður,“ segir Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, eigandi Priksins. Mánudagsklúbburinn var gríðarlega vinsæll fyrir um áratugi síðan og er nú leiddur af þremur ungum konum, þeim Valgerði, Heiðbrá og Nadiu, sem sérhæfa sig í skvísutónum og góðri stemningu.

„Nú er ég meira að skrifa um persónulega hluti“

Ungstirnið Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, er ein af þeim upprennandi íslensku söngkonum sem koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Gugusar semur tónlistina sína alla sjálf ásamt því að pródúsera og fær innblásturinn víða. Blaðamaður hitti hana í kaffi og tók á henni púlsinn.

Ómetanlegt að hafa alltaf fengið pláss til að prófa sig áfram

Tónlistarkonan Una Torfa kemur fram á Iceland Airwaves í ár en þetta er bæði í fyrsta skipti sem hún kemur fram á hátíðinni sem og fer á hátíðina yfir höfuð. Una Torfa hefur endalausan áhuga á tengslum og leggur upp úr list sem er tilfinningaþrungin og heiðarleg.

Burstar alltaf tennurnar rétt áður en hún stígur á svið

KUSK er listamannsnafn tónlistarkonunnar Kolbrúnar Óskarsdóttur en hún skaust upp á stjörnuhimininn fyrr á árinu þegar hún bar sigur úr býtum í Músíktilraunum. KUSK kemur fram á Airwaves í ár en hún var jafnframt að senda frá sér plötuna Skvaldur í dag. Blaðamaður tók púlsinn á KUSK.

Tók sitt fyrsta gigg fyrir ári síðan en hefur nú spilað um allan heim

Tónlistarkonan Árný Margrét á viðburðaríkt ár að baki sér en hún spilaði sitt fyrsta gigg á Airwaves hátíðinni í fyrra í gegnum streymi. Þá hafði hún einungis gefið út eitt lag en hefur nú sent frá sér plötu í fullri lengd og komið fram bæði hérlendis og erlendis. Blaðamaður tók púlsinn á Árnýju, sem spilar á Iceland Airwaves í ár.

Varð ólétt á Eurovision og gefur út nýja tónlist

Söngkonan ZÖE hefur komið víða að í heimi tónlistarinnar en hún var meðal annars bakraddasöngkona fyrir Eurovision atriði okkar Íslendinga í Torino síðastliðinn maí. Það er mikið á döfinni hjá ZÖE þar sem hún á von á barni, er að senda frá sér nýtt lag og kemur fram á nokkrum tónleikum.

Bjóða upp á dagpassa á Airwaves í ár

Iceland Airwaves er handan við hornið og enn bætast við íslenskar stórstjörnur. Í dag var tilkynnt að Vök, Bríet, The Vintage Caravan, Systur, Júníus Meyvant, Emmsjé Gauta og Atla Örvarsson munu koma fram. Úkraínsku Eurovisionfararnir Go_A, finnski raf- og harmónikku músíkantinn Antti Paalanen og palenstínski Grammy verðlaunahafinn Arooj Aftab verða einnig á hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×