Erlent

Óttast lofts­lags­stór­slys vegna gas­lekans

Kjartan Kjartansson skrifar
Gas vellur upp úr hafinu þar sem gat kom á Nord Stream 2-leiðsluna utan við Borgundarhólm í gær. Stærsta gasbólan sem danskar herþotur komu auga á var um kílómetri að þvermáli.
Gas vellur upp úr hafinu þar sem gat kom á Nord Stream 2-leiðsluna utan við Borgundarhólm í gær. Stærsta gasbólan sem danskar herþotur komu auga á var um kílómetri að þvermáli. Vísir/EPA

Losun gróðurhúsalofttegunda frá lekanum í Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti gæti jafnast á við árslosun heillrar borgar. Vísindamenn óttast loftslagshamfarir en losun vegna lekans gæti í versta falli orðið umtalsvert meiri en árslosun Íslands.

Evrópuríki telja að skemmdarverk hafi verið framin á rússnesku gasleiðslunum Nord Stream 1 og 2 sem byrjuðu skyndilega að leka á mánudag. Hvorug leiðslan var í notkun en í þeim er engu að síður jarðgas, fyrst og fremst metan sem er margfalt öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur.

Sérfræðingar segja erfitt að leggja mat á umfang losunar vegna lekans vegna ýmissa óvissuþátta, þar á meðal hitastigs gassins, hversu hratt það lekur og hversu mikið af því lífverur í sjónum drekka í sig áður en það nær upp í andrúmsloftið. Áhrif lekans á loftslagið gætu þó verið fordæmalaus og stórslys.

Varfærið mat bendir til þess að allt að 500 tonn af metani hafi losnað á hverri klukkustund fyrst eftir að leiðslurnar rofnuðu en dregið hafi úr kraftinum síðan eftir því sem þrýstingurinn minnkaði, að því er einn sérfræðinganna segir Reuters-fréttastofunni. Til samanburðar losnuðu um 50 tonn af metani á klukkustund þegar leki kom upp í gaslind í Alison-gljúfri í Kaliforníu í Bandaríkjunum árið 2016.

Losun á við 1,4 milljónir bifreiða á ári

Talsmaður Nord Stream 2 segir að í leiðslunni hafi verið um 300 milljónir rúmmetra af gasi. Leiðslan var aldrei tekin í notkun vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Slyppi gasið allt út í andrúmsloftið næmi það um 200.000 tonnum af metani. Slíkt magn metans hefði sömu hlýnunaráhrif yfir hundrað ára tímabil og sex milljónir tonna af koltvísýringi samkvæmt mati Reuters. Til samanburðar nam losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi þegar landnotkun er ekki tekin með í reikninginn um 4,5 milljónum tonna koltvísýringsígilda árið 2020.

Þá á eftir að taka Nord Stream 1 með í reikninginn. Talsmaður hennar hefur ekki viljað gefa upp hversu mikið gas var eftir í leiðslunni þegar hún var tekin úr notkun, vegna viðhalds að sögn Rússa, fyrir nokkrum vikum.

Zeke Hausfather, loftslagsvísindamaður við hugveituna The Breakthrough Institute, segir að losun frá lekanum á báðum leiðslum gæti jafnast á við árslosun 1,4 milljóna bifreiða. Hún næmi þó aðeins um 0,2% af árlegri losun manna á metani með bruna á jarðefnaeldsneyti.

Gæti lekið áfram í daga eða viku

Enginn hefur enn farið og kannað ástandið á gasleiðslunum. Danska orkustofnunin sagði Reuters að of snemmt væri að segja til um hvers myndi rannsaka lekann á Nord Stream 2. Líklegt sé að gas muni halda áfram að leka í nokkra daga eða jafnvel viku.

Stefano Grassi, skrifstofustjóri orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að hætta sé á að lekinn verði að loftslags- og vistfræðilegu stórslysi.

„Við erum í sambandi við [aðildarríkin] um að kanna hvað gerðist og að finna fljótlegustu leiðina til að stöðva lekana og forðast frekara tjón,“ sagði Grassi á Twitter.

Evrópusambandið hefur enn ekki kennt rússneskum stjórnvöldum beint um skemmdarverkin á leiðslunum. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, varaði við því að vísvitandi skemmdarverkum yrði svarað af fullri hörku.

Úkraínsk stjórnvöld hafa sakað Rússa beint um  „hryðjuverk“, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Jarðskjálftamælar námu sprengingar á hafsbotni í Eystrasalti áður en vart varð við lekana. Björn Lund frá jarðfræðistofnun Svíþjóðar segir engan vafa leika á að sprengingar hafi valdið lekunum.


Tengdar fréttir

Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdar­verk

Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum.

Greindu sprengingar við Nord Stream leiðslurnar

Tvær sprengingar greindust greinilega á mælitækjum í Svíþjóð og Noregi þegar göt mynduðust á Nord Stream 1 og Nord Stream 2 leiðslunum í Eystrasalti. Þá birtu Danir í dag myndefni sem sýnir lekana á yfirborði hafsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×