Rafíþróttir

Leikmannaspá Ljósleiðaradeildarinnar: Ætla að veita stóru liðunum samkeppni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar spá Ármanni þriðja sæti á tímabilinu.
Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar spá Ármanni þriðja sæti á tímabilinu.

Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO spá Ármanni þriðja sæti deildarinnar á komadi tímabili.

Ljósleiðaradeildin í CS:GO hefst með pompi og prakt næstkomandi þriðjudag og af því tilefni mun Vísir birta spá sem leikmenn deildarinnar settu saman fyrir tímabilið sem framundar er.

Ármanni er spáð þriðja sæti deildarinnar, en liðið hafnaði í fjórða sæti á seinasta tímabili. Þá voru aðeins átta lið í deildinni og ef spáin gengur eftir má alveg færa rök fyrir því að þriðja sætið í tíu liða deild sé mun betri árangur en fjórða sætið í átta liða deild.

Ármann mætir með nánast sama lið til leiks og í fyrra og ætla sér því að byggja ofan á gott gengi seinasta tímabils. Eins og áður segir hafnaði liðið í fjórða sæti á seinasta tímabili, fjórum stigum á eftir Vallea sem hafnaði í þriðja sæti og sex stigum á eftir Þór sem hafnaði í öðru sæti. Liðið ætlar sér stóra hluti í ár og stefnan er sett á að veita stóru liðunum, Dusty, LAVA (áður Vallea) og Þór, samkeppni.

Lið Ármanns skipa þeir huNdzi (Alexander Egill Guðmundsson), ofvirkur (Ólafur Barði Guðmundsson), kruzer (Kristján Finnsson), hyp4r (David Jan Guðmundsson), Vargur (Arnar Hólm Invarsson), 7homsen (Thomas Thomsen) og lambo (Guðmundur Skorri Óskarsson).

Fyrsti leikur Ármanns er gegn nýliðum Viðstöðu fimmtudaginn 15. september klukkan 20:30.

Ljósleiðaradeildin hefst næstkomandi þriðjudag, 13. september, en útsending hefst klukkan 19:15 og verða tveir leikir spilarðir, kl 19:30 og 20:30. Á fimmtudögum verða svo þrír leikir spilaðir til að loka umferðinni og hefst útsending þá líka kl 19:15, en leiktímar eru 19:30, 20:30 og 21:30. Beinar útsendingar alltaf á Stöð 2 eSport og Twitch-rás RÍSÍ.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×