Neytendur

Sam­­kaup lækkar verð á fjögur hundruð vörum um tíu prósent

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrirtækið hefur með þessu fylgt í fótspor annarra fyrirtækja á matvörumarkaði, að grípa til aðgerða til að sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup landsmanna.
Fyrirtækið hefur með þessu fylgt í fótspor annarra fyrirtækja á matvörumarkaði, að grípa til aðgerða til að sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup landsmanna. Aðsend

Verslunarkeðjan Samkaup hefur ákveðið að lækka verð á yfir fjögur hundruð vörunúmerum undir vörumerkjum Änglamark og lágvörumerkinu X-tra í öllum verslunum sínum. Um er að ræða tíu prósenta verðlækkun á vörunúmerunum sem þegar hefur tekið gildi og kemur til með að haldast óbreytt fram til áramóta hið minnsta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum. Segir að með lækkununum sé markmiðið að sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup landsmanna. Fyrirtækið fylgir þar með í fótspor til að mynda Krónunnar, sem tilkynnti á dögunum að ákveðið hafi verið að frysta verð á rúmlega tvö hundruð vörum.

Telur verðhækkanir frá framleiðendum og birgjum óþarfar

Haft er eftir Gunnari Agli Sigurðssyni, forstjóra Samkaupa, að fyrirtækið hafi lagt allt kapp á að berjast gegn hækkunum á vöruverði og tekist að halda hækkunum í lágmarki til að mynda með innflutningi á vörumerkjum eins og Änglamark og X-tra.

„Þetta þýðir að verðlækkanirnar sem tóku gildi á mánudaginn eru verulegar. Við bjóðum viðskiptavinum okkar því sama verð eða lægra en það var í upphafi árs. Við höfum verið að fá gríðarlegar verðhækkanir til okkar frá framleiðendum hér heima og birgjum, margar teljum við óþarfar og að okkar mati hefur verið of auðvelt fyrir þessa aðila að velta öllum hækkunum út í verðið. Það skrifast á litla samkeppni, sterka stöðu fárra stórra birgja og verndartolla á íslenskri framleiðslu, til að mynda á mjólk og kjöti,” segir Gunnar Egill.

Gunnar Egill Sigurðsson er forstjóri Samkaupa.aðsend

Engin viðbrögð frá birgjum og framleiðendum

Ennfremur segir að síðastliðið haust hafi Samkaup sent frá sér bréf á alla sína birgja og samstarfsaðila þar sem kallað hafi verið eftir samstarfi til að spyrna gegn hækkunum í vöruverði án nokkurra undirtekta.

„Í lok sumars sendi félagið aftur bréf á tíu stærstu birgja Samkaupa þar sem óskað var eftir fimm prósenta verðlækkun til áramóta sem þá gætu skilað sér beint til viðskiptavina, með tilliti til þess að heimsmarkaðsverð fer lækkandi og sömuleiðis stór hluti þeirra vara sem Samkaup flytur inn til landsins, einnig án nokkurs árangurs,“ segir í tilkynningunni.

Samkaup reka rúmlega sextíu verslanir undir vörumerkjum Nettó, Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og Iceland.


Tengdar fréttir

Krónan frystir verð á 240 vörum til að berjast gegn verð­bólgunni

Forsvarsmenn matvöruverslunarinnar Krónunnar hafa tekið ákvörðun um að frysta verð á 240 vörum til að leggja lið í baráttunni gegn verðbólgu. Krónan segir í tilkynningu að hún hyggist halda verði varanna stöðugu fram að áramótum til að byrja með.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×