Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins Atli Ísleifsson skrifar 31. ágúst 2022 08:50 Heiðar Guðjónsson mun láta af störfum sem forstjóri Sýnar á næstu dögum. Vísir/Vilhelm Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.
Þetta kemur fram í árshlutareikningi félagsins sem var samþykktur og kynntur í gær, en hluthafafundur fer fram í dag þar sem kosið verður í nýja stjórn. Alls sækjast sjö um fimm sæti í stjórn Sýnar. Í árshlutareikningi kemur fram tekjur á öðrum ársfjórðungi 2022 hafi numið rétt rúmum sex milljörðum og jukust um 720 milljónir frá sama tíma árið 2021. Þannig námu tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins 11,7 milljörðum króna, sem er 13,6 prósent hærra en á sama tíma 2021. Segir grunninn vera traustan Í tilkynningu er haft eftir Heiðari Guðjónssyni, fráfarandi forstjóra, að rekstrarhagnaður hafi aukist um 740 milljónir á milli ára og að félagið hafi nú sýnt mesta rekstrarhagnað í sögu fyrirtækisins. „Við náum að halda aftur af kostnaði en aukum tekjur um 14%. Ég hef fulla trú á að við höldum áfram að bæta ofan á tekjurnar en kostnaðurinn haldist hóflegur og því erum við á góðri leið með að ná því að hafa um 100 milljóna króna hagnað á mánuði af reglulegri starfsemi sem ganginn í fyrirtækinu. Við höfum fjárfest mikið í innri kerfum á síðustu þremur árum og það er langstærsta fjárfesting félagsins á tímanum. Hún fer núna að bera ávöxt með nýjungum í vöruframboði sem munu auka tekjur okkar og hlutdeild á markaði. Grunnurinn er því afar traustur,“ er haft eftir Heiðari. Hann segir ennfremur að ritað hafi verið undir samning um samstarf við uppbyggingu á 5G sendum við Nova í júní sem hafi leitt af sér stærsta landsdekkandi kerfið. „Eins styrkir það okkur enn frekar í því forskoti sem við höfum í hlutanetinu (IoT) með yfir milljón kort útistandandi en tekjuvöxtur framtíðar mun liggja að stóru leyti þar á farsímamarkaði. Á fjölmiðlamarkaði sjáum við umtalsverða aukningu í tekjum af áskriftum og auglýsingum. Allir miðlar eru að vaxa og skila jákvæðri afkomu. Þetta er síðasta afkomubirting sem ég tek þátt í og er ég einstaklega stoltur af því verki sem við höfum skilað á starfstíma mínum. Við höfum breytt algerlega stefnu fyrirtækisins, endurnýjað innri upplýsingakerfi, snúið við rekstri, endurfjármagnað félagið og gert allt þetta í miðjum heimsfaraldri. Framtíðin er svo sannarlega björt hjá Sýn hf,“ segir Heiðar sem tilkynnti fyrr í sumar að hann hafi selt alla hluti sína í félaginu og myndi láta af störfum sem forstjóri. Höfuðstöðvar Sýnar við Suðurlandsbraut.Vísir/Vilhelm Umboð núverandi stjórnar verði fellt niður Boðað var til hluthafafundar í félaginu að að kröfu Gavia Invest ehf., sem nýlega keypti stóran hlut í fyrirtækinu, en á dagskrá fundarins er tillaga um að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin. Fjórir af fimm af núverandi stjórnarmönnum sækjast eftir endurkjöri. Þau eru eftirfarandi: Jóhann Hjartarson Páll Gíslason Petrea Ingileif Guðmundsdóttir Sesselía Birgisdóttir Þá sækjast þrír til viðbótar eftir setu í stjórn: Hilmar Þór Kristinson, framkvæmdastjóri Reir og eigandi félagsins Fasta sem á beint eða óbeint stóran hlut í Sýn Jón Skaftason, einn af forsvarsmönnum Gavia Invest Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo. Hann er stærsti eigandi Gavia Invest, sem er stærsti eigandi Sýnar, eftir að Heiðar Guðjónsson, ákvað að hætta sem forstjóri og selja allan hlut sinn í félaginu. Að neðan má svo sjá helstu niðurstöður árshlutareiknings, sem sendar voru á fjölmiðla í gær. Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2022 námu 6.009 m.kr. en tekjur aukast um 720 m.kr. frá sama tíma árið 2021. Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru 11.691 m.kr. sem er 13,6% hærra en á sama tíma 2021. EBITDA nam 1.607 m.kr. á 2F 2022 í samanburði við 1.488 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 26,7% á 2F 2022 samanborið við 28,1% á 2F 2021. EBITDA á fyrstu sex mánuðum ársins var 3.317 m.kr. sem er 15,3% hækkun frá síðasta ári. Hagnaður á 2F 2022 nam 66 m.kr. samanborið við 117 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Hagnaður á fyrri árshelmingi ársins nam 273 m.kr. samanborið við 348 m.kr. tap á sama tímabili árið 2021. Inni í tapi fyrri árshelmings árið 2021 er sölutap að fjárhæð 179 m.kr. vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey. Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.580 m.kr. samanborið við 1.431 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 10,4%. Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 2.688 m.kr. samanborið við 1.975 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 36,1%. Heildarfjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 námu 1.830 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 740 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.086 m.kr. Fjármögnunarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru neikvæðar um 2.809 m.kr. á móti 1.748 m.kr. á sama tímabili árið 2021. Innifalið í fjármögnunarhreyfingum 2022 eru kaup á eigin bréfum að fjárhæð 1.860 m.kr. Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir 1.860 m.kr. Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,3% í lok fyrri árshelmings ársins 2022. Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Fjarskipti Fjölmiðlar Kauphöllin Mest lesið „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Samstarf 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Eiríkur Orri til Ofar Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi „Það verður andskoti flókið“ Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Isavia gefur strandaglópum engin grið Ásgeir og Darri til Landslaga Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Búið að greiða laun og barnabætur Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Snaps teygir anga sína út á Hlemm „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Hrun í makríl og kolmunna Sjá meira