Viðskipti innlent

Mesti rekstrar­hagnaður í sögu fyrir­tækisins

Atli Ísleifsson skrifar
Heiðar Guðjónsson mun láta af störfum sem forstjóri Sýnar á næstu dögum.
Heiðar Guðjónsson mun láta af störfum sem forstjóri Sýnar á næstu dögum. Vísir/Vilhelm

Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í árshlutareikningi félagsins sem var samþykktur og kynntur í gær, en hluthafafundur fer fram í dag þar sem kosið verður í nýja stjórn. Alls sækjast sjö um fimm sæti í stjórn Sýnar.

Í árshlutareikningi kemur fram tekjur á öðrum ársfjórðungi 2022 hafi numið rétt rúmum sex milljörðum og jukust um 720 milljónir frá sama tíma árið 2021. Þannig námu tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins 11,7 milljörðum króna, sem er 13,6 prósent hærra en á sama tíma 2021.

Segir grunninn vera traustan

Í tilkynningu er haft eftir Heiðari Guðjónssyni, fráfarandi forstjóra, að rekstrarhagnaður hafi aukist um 740 milljónir á milli ára og að félagið hafi nú sýnt mesta rekstrarhagnað í sögu fyrirtækisins.

„Við náum að halda aftur af kostnaði en aukum tekjur um 14%. Ég hef fulla trú á að við höldum áfram að bæta ofan á tekjurnar en kostnaðurinn haldist hóflegur og því erum við á góðri leið með að ná því að hafa um 100 milljóna króna hagnað á mánuði af reglulegri starfsemi sem ganginn í fyrirtækinu.

Við höfum fjárfest mikið í innri kerfum á síðustu þremur árum og það er langstærsta fjárfesting félagsins á tímanum. Hún fer núna að bera ávöxt með nýjungum í vöruframboði sem munu auka tekjur okkar og hlutdeild á markaði. Grunnurinn er því afar traustur,“ er haft eftir Heiðari.

Hann segir ennfremur að ritað hafi verið undir samning um samstarf við uppbyggingu á 5G sendum við Nova í júní sem hafi leitt af sér stærsta landsdekkandi kerfið. 

„Eins styrkir það okkur enn frekar í því forskoti sem við höfum í hlutanetinu (IoT) með yfir milljón kort útistandandi en tekjuvöxtur framtíðar mun liggja að stóru leyti þar á farsímamarkaði.

Á fjölmiðlamarkaði sjáum við umtalsverða aukningu í tekjum af áskriftum og auglýsingum. Allir miðlar eru að vaxa og skila jákvæðri afkomu.

Þetta er síðasta afkomubirting sem ég tek þátt í og er ég einstaklega stoltur af því verki sem við höfum skilað á starfstíma mínum. Við höfum breytt algerlega stefnu fyrirtækisins, endurnýjað innri upplýsingakerfi, snúið við rekstri, endurfjármagnað félagið og gert allt þetta í miðjum heimsfaraldri. Framtíðin er svo sannarlega björt hjá Sýn hf,“ segir Heiðar sem tilkynnti fyrr í sumar að hann hafi selt alla hluti sína í félaginu og myndi láta af störfum sem forstjóri.

Höfuðstöðvar Sýnar við Suðurlandsbraut.Vísir/Vilhelm

Umboð núverandi stjórnar verði fellt niður

Boðað var til hluthafafundar í félaginu að að kröfu Gavia Invest ehf., sem nýlega keypti stóran hlut í fyrirtækinu, en á dagskrá fundarins er tillaga um að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin.

Fjórir af fimm af núverandi stjórnarmönnum sækjast eftir endurkjöri. Þau eru eftirfarandi:

  • Jóhann Hjartarson
  • Páll Gíslason
  • Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
  • Sesselía Birgisdóttir

Þá sækjast þrír til viðbótar eftir setu í stjórn:

Að neðan má svo sjá helstu niðurstöður árshlutareiknings, sem sendar voru á fjölmiðla í gær.

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2022 námu 6.009 m.kr. en tekjur aukast um 720 m.kr. frá sama tíma árið 2021. Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru 11.691 m.kr. sem er 13,6% hærra en á sama tíma 2021.
  • EBITDA nam 1.607 m.kr. á 2F 2022 í samanburði við 1.488 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 26,7% á 2F 2022 samanborið við 28,1% á 2F 2021. EBITDA á fyrstu sex mánuðum ársins var 3.317 m.kr. sem er 15,3% hækkun frá síðasta ári.
  • Hagnaður á 2F 2022 nam 66 m.kr. samanborið við 117 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Hagnaður á fyrri árshelmingi ársins nam 273 m.kr. samanborið við 348 m.kr. tap á sama tímabili árið 2021. Inni í tapi fyrri árshelmings árið 2021 er sölutap að fjárhæð 179 m.kr. vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.
  • Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.580 m.kr. samanborið við 1.431 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 10,4%. Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 2.688 m.kr. samanborið við 1.975 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 36,1%.
  • Heildarfjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 námu 1.830 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 740 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 1.086 m.kr.
  • Fjármögnunarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru neikvæðar um 2.809 m.kr. á móti 1.748 m.kr. á sama tímabili árið 2021. Innifalið í fjármögnunarhreyfingum 2022 eru kaup á eigin bréfum að fjárhæð 1.860 m.kr.
  • Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir 1.860 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,3% í lok fyrri árshelmings ársins 2022.
  • Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina.

Vísir er í eigu Sýnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×