Tónlist

Ætlar að njóta hverrar einustu mínútu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hreimur ásamt dóttur sinni Emblu en þau fara saman á Þjóðhátíð í ár.
Hreimur ásamt dóttur sinni Emblu en þau fara saman á Þjóðhátíð í ár. Aðsend

Tónlistarmaðurinn Hreimur hefur gefið út hvorki meira né minna en sex Þjóðhátíðarlög og þar á meðal er lagið Lífið er yndislegt sem flestir tengja óneitanlega alltaf við Þjóðhátíð. Hann kom fyrst fram á hátíðinni árið 1997 þegar Land og synir voru óþekkt hljómsveit. Hreimur hlakkar mikið til að Þjóðhátíð verði loksins aftur haldin nú um helgina.

Þjóðhátíð 2022 fer fram með pompi og prakt í Heimaey í lok júlí í ár. Fjölbreytt flóra íslensks tónlistarfólks mun stíga á svið og skemmta gestum en hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti frá árinu 2019. Lífið á Vísi tekur hér púlsinn á tónlistarfólkinu og fær nánari innsýn í atriðið þeirra á Þjóðhátíð.

Hreimur syngur eitt frægasta Þjóðhátíðarlag okkar tíma, Lífið er yndislegt.Aðsend

Hvenær fórst þú fyrst á Þjóðhátíð?

Það var árið 1997. Land og Synir voru þarna algjörlega óþekkt hljómsveit nýbúnir að gefa út lagið Vöðvastæltur og voru fengnir til að spila á stóra sviðinu yfir dag-dagskránni sem að var ekki beint fjölsótt af þjóðhátíðargestum, en við þóttum standa okkur það vel að okkur var boðið að spila á kvöldvökunni líka. 

Það átti eftir að reynast okkur gæfuspor.

Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa hátíð?

Fólkið, staðsetningin, tónlistin. Einstaka innlit í hvít tjöld þar sem allir velkomnir.

Við hverju mega hátíðargestir búast þegar þú stígur á svið?

Ég mun gefa mig allan í þetta og skil allt mitt eftir á sviðinu í Eyjum. Göngum í takt verður loksins flutt á Þjóðhátíð.

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt?

Ég veit þú kemur er auðvitað ein af perlum hátíðarinnar og eitt af mínum uppáhalds þjóðhátíðarlögum svo hafa bara komið út aragrúi af frábærum lögum eftir aldamótin. Annars finnst mér Ástin á sér stað líka algjörlega meiriháttar lag. 

Svo þykir mér nú afskaplega vænt um Þjóðhátíðarlögin mín sex.

Hvernig ætlar þú að undirbúa þig fyrir stóru stundina?

Ég verð þarna í góðum hópi Aldamóta tónlistarmanna, Embla dóttir mín verður með mér líka svo ég ætla bara að reyna að njóta hverrar einustu mínútu. 

Loksins verður Þjóðhátíðin haldin aftur, hlakka til að sjá ykkur!

Tengdar fréttir

Var flogið á sína fyrstu Þjóðhátíð sem óvænt atriði

Sverrir Bergmann fór á sína fyrstu Þjóðhátíð fyrir 21 ári en þá var honum flogið til Vestmannaeyja til að flytja lagið Án þín fyrir brekkugesti. Hann hefur verið reglulegur flytjandi á hátíðinni síðan þá og kemur fram í ár bæði með hljómsveitinni Albatross og FM95Blö.

„Gleðjast og lifa lífinu í friði, sátt og samlyndi“

Herbert Guðmundsson er enginn nýgræðingur í tónlistarheiminum og býr yfir mikilli reynslu á því að koma fram. Hann er meðal þeirra sem spila á Þjóðhátíð í ár en þetta er þó hans fyrsta Þjóðhátíð frá upphafi. Áður en hann stígur á svið mun hann taka góða bæn og biðja fyrir að hátíðin fari vel fram.

„Alltaf verið bendlaður við alvöru partý stemningu“

Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Ingi Bauer er maðurinn á bak við lög á borð við Dicks og Upp til hópa. Hann hefur komið fram á hinum ýmsu hátíðum og spilað víðs vegar um landið en hann er meðal atriða á Þjóðhátíð í ár og segist alltaf hafa verið bendlaður við alvöru partý stemningu.

„Ég man varla eftir tónleikunum sökum sjóriðu“

Birgitta Haukdal er ein ástsælasta söngkona okkar Íslendinga og þaulvön því að stíga á svið fyrir framan fjöldann allan af áhorfendum. Fyrir um það bil tuttugu árum síðan spilaði hún á sinni fyrstu Þjóðhátíð með hljómsveitinni Írafár en hún kemur fram í Herjólfsdal í ár, bæði ein og með hljómsveitinni. Blaðamaður tók púlsinn á Birgittu.

„Við bjuggum eitthvað til og nú kunna aðrir það“

Hljómsveitin FLOTT er skipuð fimm tónlistarkonum úr ólíkum áttum tónlistarheimsins, þeim Ragnhildi, Sylvíu, Sólrúnu Mjöll, Eyrúnu og Vigdísi. FLOTT hefur vakið athygli undanfarin misseri, voru sem dæmi með lag í Áramótaskaupinu og skrifuðu í vetur undir samning við Sony. Stelpurnar koma fram á Þjóðhátíð í ár en þetta er í fyrsta skipti sem þær sækja hátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×