Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fékk koss frá sinni heittelskuðu Erin McLeod eftir leik.VÍSIR/VILHELM
Þrátt fyrir að hafa ekki tapað leik á EM féll Ísland úr keppni í gærkvöld eftir 1-1 jafntefli við Frakkland í þriðja og síðasta leik sínum.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á vellinum í Rotherham í gærkvöld líkt og í fyrri leikjum Íslands á mótinu og hér að neðan má sjá myndasyrpu hans frá kveðjustundinni.
Íslenski hópurinn heldur nú til síns heima en í stað Íslands mun Belgía spila í 8-liða úrslitum EM á föstudagskvöld þar sem liðið mætir Svíþjóð. Frakkland mætir hins vegar Hollandi í sannkölluðum stórleik á laugardagskvöld.
Stelpurnar þökkuðu fyrir stuðninginn úr stúkunni, vonsviknar á svip eftir að hafa verið svo nálægt því að komast í 8-liða úrslit.VÍSIR/VILHELMDagný Brynjarsdóttir var nálægt því að skora skömmu áður en hún gerði mark Íslands af vítapunktinum.VÍSIR/VILHELMÍslenski EM-hópurinn saman í hring eftir að niðurstaðan lá fyrir í gærkvöld.VÍSIR/VILHELMVonbrigðin leyna sér ekki í augum Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur.VÍSIR/VILHELMGylfi Þór Sigurðsson var á meðal stuðningsmanna í stúkunni og knúsaði frænku sína, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, sem átti frábært mót.VÍSIR/VILHELMSara Björk Gunnarsdóttir var komin af velli og á hliðarlínuna á lokakafla leiksins.VÍSIR/VILHELMSveindís Jane Jónsdóttir varð að fara af velli eftir að hafa fundið fyrir eymslum í læri.VÍSIR/VILHELMÍslensku stuðningsmennirnir höfðu nokkrum sinnum ærna ástæðu til að gleðjast á meðan á leik stóð.VÍSIR/VILHELMGuðný Árnadóttir lék sinn fyrsta leik á EM og stóð sig frábærlega. Hún glímdi við meiðsli í hné í aðdraganda mótsins og var með miklar umbúðir um hnéð.VÍSIR/VILHELMElísa Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir í faðmlagi eftir að Ísland féll úr leik. Leikmenn leituðu að vinum og fjölskyldu í stúkunni.VÍSIR/VILHELMIngibjörg Sigurðardóttir kom nokkuð óvænt inn í vörn íslenska liðsins og lét finna vel fyrir sér.VÍSIR/VILHELMSara Björk Gunnarsdóttir var ekki sátt við sinn gamla liðsfélaga Wendie Renard sem gerði eitt sinn mikið úr meintu broti í leiknum.VÍSIR/VILHELMGríðarlegur hiti var í Rotherham í gær en stuðningsmenn Íslands létu það ekki slá sig út af laginu.VÍSIR/VILHELMÁslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Elín Metta Jensen og Dagný Brynjarsdóttir daprar í bragði í leikslok.VÍSIR/VILHELMFyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir átti góðan leik en var tekin af velli í seinni hálfleik.VÍSIR/VILHELMSveindís Jane Jónsdóttir á leið í skyndisókn en brotið var á henni.VÍSIR/VILHELMSvava Rós Guðmundsdóttir hughreystir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur eftir að Ísland féll úr leik.vísir/vilhelmÞessi ungi stuðningsmaður Íslands sýndi stuðning með litríkum hætti.VÍSIR/VILHELM
Stelpurnar okkar eru úr leik á Evrópumótinu í Englandi þrátt fyrir 1-1 jafntefli á móti Frakklandi á New York leikvanginum í Rotherham. Úrslitin sem eyðilögðu allar vonir íslenska liðsins komu úr hinum leik riðilsins en það voru einmitt þau sem sendu okkar konur endalega heim af EM.
Hallbera Guðný Gísladóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hennar síðasti landsleikur var því 1-1 jafnteflið gegn Frakklandi í kvöld en hún staðfesti þetta sjálf á samfélagsmiðlum eftir leik.
Sveindís Jane Jónsdóttir var eins og liðsfélagar sínir svekkt með niðurstöðuna eftir EM. Hún þurfti að fara af velli vegna meiðsla undir lok leiks en hafði átt skalla í slá í fyrri hálfleik. Leikurinn endaði 1-1 og Ísland á leiðinni heim eftir góða frammistöðu í heild.
„Jákvæða er að við erum taplausar en það neikvæða er að við komumst ekki upp úr riðlinum,“ sagði fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir eftir 1-1 jafntefli Íslands og Frakklands í D-riðli Evrópumóts kvenna í fótbolta.
Íslenska landsliðið byrjaði leikinn skelfilega á móti Frakklandi með að fá á sig mark á upphafsmínútu en vann sig út úr því og tókst að ná jafntefli á móti þessu sterka liði Frakka.
Það var allan tímann ljóst að það yrði á brattann að sækja fyrir íslensku stelpurnar í kvöld gegn gríðarsterku liði Frakklands. Til að gera brekkuna töluvert brattari þá skoruðu Frakkar fyrsta mark leiksins strax áður en fyrsta mínúta leiksins var liðin.
Ísland átti séns á að komast áfram í 8-liða úrslit á EM 2022 í Englandi þegar leikið var við sterkt lið Frakka sem þó gerði sex breytingar á liði sínu. Leikurinn endaði 1-1 en Belgar unnu Ítali og því eru Stelpurnar okkar úr leik. Twitter þjóðin var að sjálfsögðu með sínar skoðanir á því sem fór fram.