Innlent

Allir að verða tilbúnir fyrir sögulega Þjóðhátíð: „Þetta er svo töfrandi staður“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Allir eru á fullu að undirbúa hátíðina í ár.
Allir eru á fullu að undirbúa hátíðina í ár. Vísir/Bjarni

Mikil eftirvænting er í Eyjamönnum fyrir Þjóðhátíð þetta árið eftir vonbrigði síðustu tvö ár. Í annað sinn í sögunni er Þjóðhátíðarlagið samið og flutt af konu og í fyrsta sinn verða aðeins konur á sviðinu þar sem Kvennakór Vestmannaeyja verður með Klöru Elias að flytja lagið Eyjanótt. Fyrsta æfingin fór fram á dögunum og er óhætt að segja að einhverjir verði með gæsahúð eftir tvær vikur.

Eftir þriggja ára bið fer þjóðhátíð loksins fram í Vestmannaeyjum en henni var aflýst bæði árið 2020 og 2021 vegna kórónuveirufaraldursins. Í bænum er undirbúningurinn þegar hafin og er mikil eftirvænting meðal íbúa.

„Hún er svo stór hluti af okkur og þetta er auðvitað bara búið að vera svolítið flókið síðustu tvö ár. Þannig það er mikil tilhlökkun og verður gríðarlega gaman að sjá brekkuna fulla af fólki,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.Vísir/Bjarni

Þrátt fyrir langa bið segir hún Eyjamenn ekki ryðgaða og er undirbúningur í fullum gangi hjá öllum í bænum.

„Þið sjáið það í verslunum og annars staðar að fólk er byrjað að byrgja sig upp, af því að hér að minnsta kosti þrefaldast, ef ekki fjórfaldast, íbúafjöldinn, þannig þú þarft að gera ráðstafanir. En ég held að við séum klár, búin að hvíla okkur vel,“ segir Íris.

Útlit fyrir gæsahúð í brekkunni

Í Herjólfsdal er sömuleiðis allt að verða tilbúið. „Mannvirkin eru að fara upp, brennan er að hlaðast upp og fólk er svona farið að baka heima og græja hvítu tjöldin og við erum bara á mjög góðri leið með þetta,“ segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs og formaður Þjóðhátíðarnefndar ÍBV.

Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs og formaður Þjóðhátíðarnefndar ÍBV.Stöð 2

Það hafi verið mikið áfall fyrir Eyjamenn þegar þjóðhátíð var aflýst árið 2020 og enn meira árið 2021, þegar aðeins vika var til stefnu. Áfallið var ekki síður mikið fyrir ÍBV, enda Þjóðhátíð stærsti fjáröflunarliðurinn. Að fá að halda loksins hátíð verði því verulega ljúft.

„Ég hugsa að maður muni alveg hríslast um af gæsahúð þegar þetta verður loksins sett á föstudeginum á Þjóðhátíð, það er ekki spurning,“ segir Hörður.

En er hann búinn að panta sól fyrir helgina eftir lélegan júlímánuð?

„Það er allt klárt, við erum búin að græja það og vonum að það verði gott veður, en það verður alla vega alltaf gott veður í hjarta þeirra sem munu mæta í Herjólfsdal,“ segir Hörður.

Aðeins konur á sviðinu í fyrsta sinn

Þá má að sjálfsögðu ekki gleyma sjálfu þjóðhátíðarlaginu en í ár var það í höndum Klöru Elias sem samdi lagið Eyjanótt ásamt Nylon systur sinni Ölmu Guðmundsdóttir.

Klara mun flytja lagið ásamt kvennakór Vestmannaeyja en þetta er aðeins í annað sinn í sögunni sem lagið er samið og flutt af konu, eftir að Ragga Gísla kom með lagið Sjáumst þar árið 2017. Tilfinningarússíbani og óvissa síðustu ára eru áberandi í textanum að þessu sinni.

Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár.Vísir/Bjarni

„Maður veit ekkert hvað morgundagurinn ber í skauti sér, og ég hugsaði að ég ætlaði einhvern veginn að leyfa því að vera sálin í laginu, hvað það verður dásamlegt að koma aftur saman eftir allan þennan tíma og hafa upplifað allar þessar tilfinningar,“ segir Klara.

„Ég söng í fyrra fyrir tómum dal í sjónvarpsútsendingu og eins merkilegt og magnað og það var, þá get ég ekki beðið eftir að gera þetta fyrir fullan dal í þetta skiptið,“ segir hún enn fremur.

Hún verður ekki ein á sviðinu en með henni verður Kvennakór Vestmannaeyja til að tryggja að allir fái gæsahúð. Þetta verður í fyrsta sinn sem aðeins konur flytja Þjóðhátíðarlagið og því um að ræða sögulega stund.

Klippa: Klara Elias og Kvennakór Vestmannaeyja flytja Þjóðhátíðarlagið saman í fyrsta sinn

Klara og kórinn hittust í fyrsta sinn síðastliðinn föstudag og voru töfrar í loftinu þegar þau tóku sína fyrstu æfingu saman. Fréttastofa fékk að fylgjast með æfingunni og var það eins og hópurinn hafði aldrei gert annað en að syngja saman.

Margir hafa eflaust miklar væntingar fyrir hátíðina í ár en kórinn er tilbúinn og Klara segist ekki stressuð.

„Það er einhver ótrúlega sérstök orka í Vestmannaeyjum, þetta er svo töfrandi staður og það er svo vel tekið á móti manni, bæði heimafólk og bara eyjan sjálf, það er svo mikill friður yfir þessum stað. Þetta verður bara skemmtilegt og ég hlakka bara til,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Enn bætist í dagskrána á Þjóðhátíð

Tónlistarfólkið Jóhanna Guðrún, Ragga Gísla, Hreimur, Aldamótatónleikarnir og Herbert Guðmundsson bætast á sívaxandi lista þeirra sem munu koma fram á Þjóðhátíð í ár. Þetta verður frumraun Herberts í dalnum. 

Frumsýning á nýrri útgáfu af Lífið er yndislegt

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á glænýrri útgáfu af Lífið er yndislegt þar sem tónlistarfólkið Klara Elias og Hreimur syngja órafmagnaða útgáfu af þessu sögulega Þjóðhátíðarlagi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×