Innherji

Sidekick íhugar að fá innlenda fjárfesta inn í hluthafahópinn

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Tryggvi Þorgeirsson, stofnandi og forstjóri Sidekick Health. 
Tryggvi Þorgeirsson, stofnandi og forstjóri Sidekick Health.  VÍSIR/VILHELM

Heilsutæknifyrirtækið Sidekick Health, sem hefur nýlega lokið umfangsmikilli fjármögnunarumferð sem var leidd af erlendum vísissjóðum, hefur til skoðunar að fá innlenda fjárfestum inn í hluthafahópinn á næstunni samkvæmt heimildum Innherja. 

Sidekick tryggði sér 55 milljónir Bandaríkjadala í vor, jafnvirði um 7,8 milljarða króna miðað við núverandi gengi, í fjármögnunarumferð sem var leidd af Novator Ventures. Fyrirtækið var þá verðmetið á hátt í 350 milljónir dala, eða sem nemur 49 milljörðum króna.

Fjárfestingabankinn Fossar, ráðgjafi Sidekick Health, hefur samkvæmt heimildum Innherja haft samband við valda fjárfesta þar sem athugað er með áhuga á að taka þátt í hlutafjáraukningu sem gæti numið allt að 25 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 3,5 milljarða króna. 

Kannaður var áhugi fjárfesta á því að kaupa hlutafé á sama gengi og í síðustu fjármögnunarumferð þegar fyrirtækið var, eins og fyrr sagði, verðmetið á hátt í 350 milljónir dala. Á meðan hlutafjáraukningunni stóð fann fyrirtækið fyrir áhuga af hálfu innlendra einkafjárfesta en einnig, eftir því sem Innherji kemst næst, af hálfu stofnanafjárfesta á borð við sjóðastýringafyrirtækið Stefni. Heilsutæknifyrirtækið, sem er vel fjármagnað eftir hlutafjáraukninguna eins og stendur, hefur hins vegar ekki tekið ákvörðun um hvort það láti af því verða af því að selja innlendum fjárfestum hlut á næstunni.

Samtals hefur Sidekick sótt rúmlega tíu milljarða króna til innlendra og erlendra vísisjóða á tæpum tveimur árum til að styðja við vöxt félagsins í Evrópu og Bandaríkjunum, en félagið hefur nú einnig sett upp starfstöðvar í Berlín, Boston og Stokkhólmi.

Sidekick þróar heilbrigðismeðferðir til að bæta heilsu fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, bólgusjúkdóma og krabbamein. Fyrirtækið starfar einkum með alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum þar sem lausnin hefur verið samþætt lyfjameðferðum með góðum árangri, auk þess sem fyrirtækið vinnur með veitendum sjúkratrygginga í Bandaríkjunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×