Innlent

Sprengisandur: Innsýn í Rússland og fyrstu skref Niceair

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sprengisandur hefst klukkan tíu.
Sprengisandur hefst klukkan tíu.

Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá Bylgjunnar og Stöð 2 Vísis í dag frá klukkan 10 til 12.

Sprengisandurinn ræðir í dag m.a. um mannauðsmál - Herdís Pála Pálsdóttir er sérfræðingur og þekkir þessi mál betur en flestir, vinnumarkaðurinn er að breytast og breytast hratt, en hvernig og hvert munu þær breytingar leiða okkur?

Hermundur Sigmundsson prófessor og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum ætla að fjalla um verkefni sem kallast Kveikjum neistann og miðar að því að bæta lestrarkennslu í grunnskóla. Verkefnið var lengi í undirbúningi, fyrstu niðurstöður frá Vestmannaeyjum lofa góðu en það verður aldrei of oft sagt að lestur er undirstaða allrar annarrar menntunar og hæfni.

Árni Þór Sigurðsson sendiherra í Rússlandi verður á línunni frá Moskvu og við ætlum að freista þess að fá innsýn í umræðuna sem þar er um Úkraínustríðið og allar þess miklu hliðarverkanir. Árni miðlar af áratuga kynnum sínum af Rússlandi.

Í lokin mætir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Niceair en það er óhætt að segja að sumt í rekstri félagsins, þessar fyrstu vikur, hafi einmitt ekki verið sérstaklega næs fyrir farþegana. Er Niceair komið til að vera og hvert stefnir félagið og hversvegna gengur svona brösulega að koma fólki frá Akureyri til Lundúna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×