Allvíða síðdegisskúrir og hiti að sautján stigum Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2022 07:19 Hiti á landinu verður almennt á bilinu tíu til sautján stig í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu, síðdegisskúrum allvíða.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar segir að hiti verði á bilinu tíu til sautján stig þar sem líklega verður hlýjast austur á Héraði. „Það er útlit fyrir svipað veður á morgun, en á fimmtudag nálgast lægð úr suðri og þá hvessir væntanlega við suðurströndina og fer að rigna þar seint um kvöldið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en austan 8-13 syðst. Allvíða skúrir, einkum eftir hádegi, en sums staðar þokuloft við norðurströndina. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig að deginum. Á fimmtudag: Vaxandi austlæg átt, 5-13 m/s seinnipartinn, en 13-18 við suðurströndina. Skýjað en úrkomulítið, hiti 8 til 16 stig. Á föstudag: Norðaustan og austan 8-13, en allhvass vindur á Suðausturlandi fram eftir degi. Bjart með köflum vestanlands, rigning suðaustantil og dálítil væta um tíma í öðrum landshlutum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Vesturlandi. Á laugardag: Norðlæg átt og dálítil rigning með köflum norðan- og austanlands. Bjart veður um landið suðvestanvert, en stöku skúrir síðdegis. Hiti 7 til 17 stig, svalast við norðausturströndina en hlýjast suðvestanlands. Á sunnudag (sjómannadagurinn): Norðlæg átt, skýjað og dálítil rigning norðaustanlands, en bjart með köflum sunnanlands. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast sunnan heiða. Á mánudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu vestantil á landinu.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Víða gola og dálítil væta Hiti gæti náð fimmtán stigum norðaustantil Víðast bjart en dálitlar skúrir sunnanlands Þurrt suðvestantil og hiti á landinu að tólf stigum Vaxandi suðaustanátt og bætir í rigningu Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun Líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi Skúrir og slydduél í suðlægum áttum Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Búast má við slyddu Rigning með köflum víðast hvar Víðast dálitlar skúrir en bjartara norðanlands Bjartviðri á verkalýðsdaginn Að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil Norðlægari vindur í dag en um helgina Hvassast sunnantil og hlýjast vestantil Lægð nálgast landið úr austri Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Sól og allt að þrettán gráður í borginni Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Hægur vindur og sólríkt veður Hiti að þrettán stigum Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Víða blautt í dag og varað við asahláku Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Hlýnar um helgina Sjá meira