Innherji

Jakob Valgeir kaupir 20 prósent í Hraðfrystihúsinu Gunnvör

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf.
Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf. Arnar Halldórsson

Jakob Valgeir ehf., sem rekur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Bolungarvík, hefur keypt nærri 20 prósenta hlut í Hraðfrystihúsinu Gunnvör samkvæmt heimildum Innherja.

Meginstarfsemi Hraðfrystihússins felst í útgerð þriggja togara, eins rækjubáts, fiskvinnslu í Hnífsdal og lifrarniðursuðu í Súðavík. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns og samanlagður afli skipa félagsins á árinu 2021 var 15.760 tonn. Hraðfrystihúsið er með um 1,8 prósenta hlutdeild í úthlutuðum aflaheimildum á meðal íslenskra útgerðarfyrirtækja.

Rekstrartekjur félagsins námu um 41 milljón evra á síðasta ári, jafnvirði um 5,7 milljarða króna, og jukust um 9,1 prósent milli ára. Eignir sjávarútvegsfyrirtækisins námu 101 milljón evra, jafnvirði 14 milljarða króna, í lok síðasta árs og eigið féð nam 34 milljónum evra.

Seljendur eru systkinin Guðmundur, Kristinn Þórir, Ólöf Jóna og Steinar Örn Kristjánsbörn en þau hafa átt eignarhlutinn í áratugi. 

Eftir kaupin verður Jakob Valgeir annar stærsti hluthafi Hraðfrystihússins en sá stærsti er eftir sem áður félagið Ísfirsk fjárfesting, sem er í eigu Ingu Steinunnar Ólafsdóttur og Kristjáns Guðmundar Jóhannssonar, með rúm 28 prósent. 

Jakob Valgeir ehf. er með um 0,95 prósenta hlutdeild í úthlutuðum aflaheimildum á meðal íslenskra útgerðarfyrirtækja.

Eftir hlutafjárútboð Íslandsbanka í mars var komst Jakob Valgeir á listann yfir stærstu hluthafa bankans með 1,02 prósenta hlut. Félagið var hins vegar horfið af listanum í byrjun síðustu viku.  Þá á Jakob Valgeir 10,5 prósenta hlut í Iceland Seafood International og um 0,5 prósenta hlut í fjárfestingafélaginu SKEL. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×