Innlent

Leita að vitni að líkamsárás

Bjarki Sigurðsson skrifar
Lögreglan á Vestfjörðum leitar að vitni að líkamsárás fyrir utan Edinborgarhúsið.
Lögreglan á Vestfjörðum leitar að vitni að líkamsárás fyrir utan Edinborgarhúsið. Vísir

Lögreglan á Vestfjörðum leitar að vitni að líkamsárás sem framin var aðfaranótt sunnudags 17. apríl. Málið er til rannsóknar hjá embættinu. 

Árásin átti sér stað fyrir utan Edinborgarhúsið á Ísafirði og eru þeir sem geta veitt upplýsingar um málið beðnir um að setja sig í samband við lögregluna á Vestfjörðum í gegnum Facebook eða símleiðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×