Körfubolti

Lið Golden State og Milwaukee kláruðu bæði í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nikola Jokic og Stephen Curry þakka hvorum öðrum fyrir einvígið eftir sigur Golden State liðsins í nótt.
Nikola Jokic og Stephen Curry þakka hvorum öðrum fyrir einvígið eftir sigur Golden State liðsins í nótt. AP/Jed Jacobsohn

Golden State Warriors og NBA-meistarar Milwaukee Bucks tryggðu sér í nótt sæti í annarri umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta og sendu um leið lið Denver Nuggets og Chicago Bulls í sumarfrí.

Golden State er fyrsta liðið í Vesturdeildinni til að komast áfram upp úr fyrstu umferðinni en austan megin eru nú komin áfram Milwaukee Bucks, Miami Heat og Boston Celtics.

Stephen Curry kom aftur inn í byrjunarliðið hjá Golden State Warriors og skoraði 30 stig þegar liðið vann 102-98 sigur í fimmta leiknum á móti Denver Nuggets og einvígið þar með 4-1.

Curry var að koma til baka eftir meiðsli og byrjaði fyrstu fjóra leiki einvígsins á bekknum. Eftir tap í síðasta leik kom hann inn í byrjunarliðið fyrir Kevon Looney. Steve Kerr byrjaði því með mjög lítið byrjunarlið með Draymond Green sem miðherja og þá Curry, Andrew Wiggins, Jordan Poole og Klay Thompson með þeim.

Gary Payton II kom með 15 stig inn af bekknum og var næststigahæstur ásamt sem Klay Thompson hitti þó aðeins úr 1 af 6 þriggja stiga skotum sínum.

Nikola Jokic skoraði 12 af 30 stigum sínum á síðustu 3:46 í leiknum en var einnig með 19 fráköst og 8 stoðsendingar.

Giannis Antetokounmpo skoraði 33 stig úr aðeins 15 skotum utan af velli þegar Milwaukee Bucks tryggði sér 4-1 í einvíginu á móti Chicago Bulls með sannfærandi 116-100 sigri. Giannis var einnig með 9 fráköst á þeim 30 mínútum sem hann spilaði.

Pat Connaughton kom með 20 stig inn af bekkum en hann hitti úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum og Bobby Portis var með 14 stig og 17 fráköst. Patrick Williams var atkvæðamestur hjá Chicago liðinu með 23 sitg en Nikola Vucevic skoraði 19 stig, tók 16 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Milwaukee Bucks sýndi mikinn styrk í einvíginu á móti Chicago Bulls ekki síst með því að vinna þrjá leiki í röð eftir að liðið missti Khris Middleton í hnémeiðsli. Middleton er einn besti leikmaður liðsins en Bucks liðið vann alla þessa þrjá síðustu leiki með meira ein tíu stigum.

Það skipti auðvitað miklu máli fyrir Bulls menn að liðið missti þá Zach LaVine og Alex Caruso í lok einvígsins, LaVine vegna kórónuveirunnar og Caruso vegna heilahristings. Liðið þurftu um leið miklu meira frá DeMar DeRozan sem skoraði ekki eitt stig á fyrstu 26 mínútum leiksins í nótt en endaði með 11 stig og 7 fráköst.

  • Úrslitin í úrslitakeppni NBA í nótt:
  • Golden State Warriors - Denver Nuggets 102-98
  • Milwaukee Bucks - Chicago Bulls 116-100
  • -
  • Staðan í einvígunum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar núna:
  • Austurdeildin:
  • (1. sæti) Miami Heat 4-1 Atlanta Hawks (8. sæti) BÚIÐ
  • (2) Boston Celtics 4-0 Brooklyn Nets (7) BÚIÐ
  • (3) Milwaukee Bucks 4-1 Chicago Bulls (6) BÚIÐ
  • (4) Philadelphia 76ers 3-2 Toronto Raptors (5)
  • Vesturdeildin:
  • (1. sæti) Phoenix Suns 3-2 New Orleans Pelicans (8. sæti)
  • (2) Memphis Grizzlies 3-2 Minnesota Timberwolves (7)
  • (3) Golden State Warriors 4-1 Denver Nuggets (6) BÚIÐ
  • (4) Dallas Mavericks 3-2 Utah Jazz (5)
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×