Innlent

„Spillingin gerist vart svæsnari“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir er ómyrk í máli og gagnrýnir bankasöluna harðlega.
Jóhanna Sigurðardóttir er ómyrk í máli og gagnrýnir bankasöluna harðlega. Vísir

Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra segir að að salan á Íslandsbanka hafi verið sukk og svínarí. Leita þurfi leiða til að rifta henni og nú þurfi að virkja lög um ráðherraábyrgð.

Jóhanna segir í færslu á Facebook-síðu sinni að draga þurfi menn til ábyrgðar. 

„Það er ekki nóg með að skúrkar úr bankahruninu hafi komist bakdyramegin inn heldur virðast dyr lánastofnana hafa staðið þeim opnar til lántöku fyrir góssinu. Fjöldi kaupenda seldi strax og græddi milljarða á „einni nóttu“ af almannaeign. Spillingin gerist vart svæsnari.“

Hún segir að nú þurfi að virkja lög um ráðherraábyrgð sem Alþingi hafi heykst á að breyta þrátt fyrir kröfu rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu þar um.

„Ég skora á Alþingi að breyta þegar í stað þessum lögum en frumvarp liggur fyrir um það frá Samfylkingunni og Pírötum,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×